A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Hörmungardögum lokið

| 23. febrúar 2015
Uppsetning Leikfélags Hólmavíkur á Sweeney Todd. Mynd: Haukur Sigurðsson
Uppsetning Leikfélags Hólmavíkur á Sweeney Todd. Mynd: Haukur Sigurðsson
Nú er öðrum Hörmungardögum lokið og ekki hægt að segja annað en að vel hafi tekist til, þrátt fyrir leiðindaveður og erfiða færð. Framlög allra sem lögðu hönd á plóg voru glæsileg í hörmuleik sínum og eiga þátttakendur og gestir hrós skilið fyrir hræðilega góða helgi. Takk fyrir okkur.

Hörmungardagar á Facebook

| 19. febrúar 2015
Hægt er að fylgjast náið með Hörmungardögunum á facebooksíðu hátíðarinnar og fá þar hræðilegar fréttir og uppfærslur beint í æð. Þar er einnig hægt að deila eigin upplifunum, myndum, skoðunum, kvörtunum og fleiru.

Dagskrá Hörmungardaga

| 17. febrúar 2015
Veturinn er mörgum erfiður. Hann er langur, kaldur, dýr og óútreiknanlegur. Á Hörmungardögum gefst okkur tækifæri til að njóta allra þessara ömurlegheita saman og reyna að gera gott úr þeim… eða bara líða enn ver yfir hlutskipti okkar í slæmum félagsskap annarra furðufugla....
Meira

Breytingar á skipan sveitarstjórnar Strandabyggðar

| 12. febrúar 2015
Á sveitarstjórnarfundi 1231 í Strandabyggð þann 10. febrúar sl. var tekið fyrir erindi frá Viðari Guðmundssyni sveitarstjórnarmanni af J-lista þar sem hann óskaði eftir ársleyfi frá störfum í sveitarstjórn. Var erindið samþykkt.  Ásta Þórisdóttir, fyrsti varamaður af J-lista tekur sæti Viðars í fjarveru hans. Með þessum breytingum breytast jafnframt kynjahlutföll sveitarstjórnar sem þá verður skipuð 3 konum og 2 körlum. Sjá skipan sveitarstjórnar Strandabyggðar hér.

Tilkynning frá Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps

| 11. febrúar 2015
Magnús Baldursson sálfræðingur verður á Hólmavík þriðjudaginn 17. febrúar næstkomandi. Þeir íbúar sem vilja óska eftir tíma hjá Magnúsi er bent á að hafa samband við Maríu Játvarðardóttur félagsmálastjóra Stranda og Reykhólahrepps á skrifstofutíma í síma 451-3521 eða að senda á hana póst í netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is .
Eldri færslur

Facebook

Vefumsjón