Ekkert lát á fjárfestingum HB Granda HF. á Vopnafirði.
Höfundur Nonni Sig.
Friday, 29 January 2010
Í dag komu tvær nýjar síldar/makrílflökunarvélar til Vopnafjarðar en HB Grandi festi kaup á þessum vélum til að auka afköstin í manneldisvinnslunni en eins til að vera betur í stakk búinn til að vinna makrílinn. Vélarnar eru Baader gerðar og eru sjálfvirkar að mestu og kosta um 50 milljónir hvor.
Ef eitthvað er að marka sjávarútvegsráðherra þá mun þetta borga sig hraðar en auga blikkar því verðið á makrílnum er gígatiskt þessa dagana og til stendur að frysta hann allan.
Einstakt tækifæri fyrir Ástu Birnu og Arnór Frey
Höfundur Nonni Sig.
Friday, 29 January 2010
Þann 9. janúar síðastliðinn héldu hjónin Ásta Birna Ólafsdóttir og Örn Eyjólfsson ásamt syni sínum Arnóri Frey til Austin, Texas í Bandaríkjunum. Arnór Freyr er 10 ára með dæmigerða einhverfu. Hann hefur fengið góða kennslu í gegnum árin en ekki náð tökum á talmáli. Að sögn Ástu Birnu voru þau að gefast upp á leit að lausn þegar þau fóru að kynna sér aðferðir sem miða að því að hjálpa einstaklingum að tjá sig með aðstoð tölvutækninnar.
Fullkomnasta fiskmjölsverksmiðja landsins langt á veg komin.
Höfundur Nonni Sig.
Thursday, 28 January 2010
„Nú er lokaspretturinn hafinn“ sagði Sveinbjörn Sigmundsson verksmiðjustjóri fyrir nokkrum dögum við vefmiðil HB Granda hf. og hafa menn látið hendur standa fram úr ermum síðustu daga. Það eru um 60 manns sem eru að vinna við verkið sem hófst fyrir rúmu ári síðan en stefnt er að því að því ljúki 10.febrúar 2010.
Á Vopnfirskan mælikvarða er þetta risa verkefni og ber vott um kjark og áræðni stjórnenda HB Granda hf. að ráðast í þessar framkvæmdir á Vopnafirði skömmu eftir hrun bankana á íslandi en fjárfestingar HB Granda hf. í uppsjávarvinnslu félagsins hér nema alls rúmum þremur milljörðum króna á sl. fimm árum. Á myndinni hér til hliðar eru þeir sem voru að vinna í dag en hér eru fleiri myndir.
Brottfluttir athugið!
Höfundur Nonni Sig.
Wednesday, 27 January 2010
Þorramatur.
Þorrablót Átthagafélags Vopnfirðinga,Héraðsmanna,Borgfirðinga Eystri og Breiðdælinga verður haldið
laugardaginn 6. Febrúar 2010 í Lionssalnum Auðbrekku 25-27 Kópavogi.
Húsið
opnar klukkan 19.00 borðhald hefst klukkan20.00.Veislustjóri er Arndís
Þorvaldsdóttir frá Egilsstöðum og ræðumaður kvöldsins er Sigfús Vilhjálmsson
frá Brekku.Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi.. Forsala aðgöngumiða
verður að Auðbrekku 25-27 fimmtudagin og föstudaginn 4.og5. febrúar frá
17.00-19.00.Aðgangseyrir 5.000 krónur og á dansleik 2.000.
Fyrir hönd
Vopnfirðingafélagsins í Reykjavík Jón Gíslason gsm 8208607.
Sýndu hvað í þér býr
Höfundur Nonni Sig.
Tuesday, 19 January 2010
Félagsmálanámskeiðið, Sýndu hvað í þér býr, verður haldið á Vopnafirði 11. febrúar kl. 18-22. Námskeiðið verður í Safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju. Þátttaka er ókeypis.
Skráning fer fram í síma 473-1569 og á netfanginu Einnig eru upplýsingar veittar í þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929 og á www.umfi.is
Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í framkomu og fundarsköpum.
Þorrablót 2010
Höfundur Nonni Sig.
Saturday, 16 January 2010
Þorrablót Vopnfirðinga
verður haldið laugardaginn 23. janúar n.k. í
félagsheimilinu Miklagarði.
Borðhald hefst stundvíslega kl. 20.00 og opnar
húsið kl. 19.30.
Að borðhaldi loknu eða um kl. 23.00 hefst dansleikur
með hljómsveitinni Von frá Sauðárkróki og með
henni í för verður Aðalsteinn Ísfjörð
harmoníkuleikari.
Miðaverð á þorrablót 2010 er: 7.500 kr.
Miðasala fer fram í Miklagarði:
þriðjudaginn 19. janúar kl. 16.00 til 18.00
miðvikudaginn 20. janúar kl. 16.00 til 18.00
Fyrirkomulag miðasölu: Aðeins tekið við reiðufé
og debetkortum.
Athugið breytingu á miðasöludögum