A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Bókavík endurvakin

| 16. nóvember 2020
Teikning eftir Sunnevu Guðrúnu Þórðardóttur
Teikning eftir Sunnevu Guðrúnu Þórðardóttur
Kæru íbúar og velunnarar,

Morgnarnir eru dimmir, farið er að snjóa og samkomutakmarkanir halda áfram. Það er þó margt að gleðjast yfir og mikilvægt að halda áfram að njóta og láta sér hlakka til.

Í tilefni af Degi íslenskrar tungu tilkynnum við að Bókavík hefur verið endurvakin. Vikan 23.-29. nóvember verður helguð bókmenntum í víðum skilningi. Tilgangurinn er að hvetja fólk til að njóta lesturs bóka og ljóða ásamt því að skrifa sjálft. Hátíðin verður lágstemmd og mikið til á netinu en hvers kyns viðburðir sem gæta að sóttvarnarreglum eru velkomnir á dagskrá. Allir sem vilja leggja sitt að mörkum mega gjarnan hafa samband á tomstundafulltrui@strandabyggd.is eða við Esther Ösp í síma 849-8620.

Slökkvilið Hólmavíkur

| 16. nóvember 2020
Fundur með liðsmönnum Slökkviliðs Hólmavíkur, í félagsheimiinu í dag kl 18-19. 

Meðal umræðuefna er; staða slökkviliðsins, nýliðun, uppbygging, efling starfseminnar og þátttaka í Brunavörnum Dala, Reykhóla og Stranda.

Kveðja
Þorgeir Pálsson
Sveitarstjóri Strandabyggðar


Íbúafundur Sterkra Stranda

| 10. nóvember 2020


Fjarfundur verður fimmtudaginn 12. nóvember frá klukkan 17:30 - 21:00
Sjá auglýsingu

Sveitarstjórnarfundur 1311 í Strandabyggð, 10.11.20

| 06. nóvember 2020

Sveitarstjórnarfundur 1311 í Strandabyggð

Fundur nr. 1311, í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 10. nóvember 2020 kl 16.00 í Hnyðju.

 

Fundardagskrá er svohljóðandi:

 

  1. Ákvörðun um notkun fjarfunda sveitarstjórnar og nefnda sveitarfélagsins
  2. Fjárhagsáætlun 2021 og 3ja ára áætlun 2022-2024, 1. umræða
  3. Ákvörðun um útsvarsprósentu 2021
  4. Hitaveita - TRÚNAÐARMÁL
  5. Viðauki við fjárhagsáætlun 2020 – skerðing framlaga Jöfnunarsjóðs
  6. Fundargerðir nefnda
    1. Velferðarnefnd frá 15.10.20
    2. Ungmennaráð frá 09.11.20
  7. Forstöðumannaskýrslur
  8. Strandir.is, tilboð um upplýsingamiðlun
  9. Erindi Jóns Jónssonar – umsókn til Húsafriðunarsjóðs
  10. Brothættar byggðir, fundargerð frá 16.10.20
  11. Umsókn um skólavist í öðru sveitarfélagi
  12. Áfangastaðaáætlun Vestfjarða 2020, drög
  13. Ályktun Dalabyggðar, Reykhólahrepps, Húnaþings Vestra og Strandabyggðar um afurðaverð í sauðfjárrækt
  14. Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða, fundur 130 frá 15.10.20
  15. Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, fundir 889 og 890 – til kynningar
  16. Hafnarsamband Íslands, fundir nr. 427 – til kynningar
  17. Stjórn Vestfjarðastofu, fundur 30 – til kynningar
  18. Stytting vinnuviku – kynning
  19. Boðun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:

Jón Gísli Jónsson

Ásta Þórisdóttir

Eiríkur Valdimarsson

Guðfinna Lára Hávarðardóttir

Pétur Matthíasson

Leiðbeiningar um rými utanhúss og innandyra vegna COVID-19

| 02. nóvember 2020

 


Fjöldatakmörkun á samkomum fer eftir ákvörðun yfirvalda hverju sinni.


Skv. reglugerð heilbrigðisráðherra frá 31. október 2020 mega mest 10 manns koma saman í rými innan- sem utandyra (með ákveðnum undantekningum).


Um öll rými og svæði gildir að einstaklingar eiga ekki að koma inn á þau ef þeir:


 Eru í sóttkví


 Eru í einangrun (einnig meðn beðið er niðurstöð sýnatöku).


 Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.


 Eru með einkenni um COVID-19 (hósta, hita, hálssærindi, kvefeinkenni, höfuðverk, bein- eða vöðvaverki, þreytu).


Börn fædd árið 2015 og síðar eru undanþegin fjöldatakmörkunum.

...
Meira
Eldri færslur

Facebook

Vefumsjón