A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Skrifstofa Strandabyggðar - sumarlokun

| 14. júlí 2016
Skrifstofa Strandabyggðar að Höfðagötu 3 á Hólmavík verður lokuð dagana 21. júlí - 2. ágúst 2016 vegna sumarfría starfsmanna. Skrifstofan verður aftur opin þann 3. ágúst.

Lokun skrifstofu hefur ekki áhrif á aðra starfsemi á vegum sveitarfélagsins s.s. Áhaldahúss eða Íþróttamiðstöðvar, sjá hér að neðan:...
Meira

Náttúrubarnaskólinn á Ströndum - dagskráin í júlí

| 13. júlí 2016
Náttúrubarnaskólinn stendur fyrir margvíslegum skemmtilegum viðburðum á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum í sumar. Námskeiðum fyrir náttúrubörn á öllum aldri, kvöldgöngum, fuglafjöri, spurningakeppnum, sagnaskemmtunum og mörgu fleira. Á svæðinu í kringum Sævang er fuglalífið ótrúlega fjölbreytt og fuglarnir orðnir vanir mannaferðum. Hægt er að klappa æðarkollunni Kollfríði þar sem hún liggur á hreiðri sínu. Teistur verpa í manngerða kassa þar sem hægt er að fylgjast með teistum og ungunum þegar þeir koma úr eggjunum, en þeir halda til í kössunum í mánuð....
Meira

Laust starf í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar Norðurfirði

Salbjörg Engilbertsdóttir | 11. júlí 2016

Laust er til umsóknar starf verslunarstjóra í Norðurfirði frá og með ágústmánuði.

Starf skrifstofumanns á Hólmavík – Sýslumaðurinn á Vestfjörðum

| 29. júní 2016

Laus er til umsóknar staða skrifstofumanns í útibúi Sýslumannsins á Vestfjörðum á Hólmavík. Um er að ræða 50% starfshlutfall eftir hádegi.


Óskað er eftir jákvæðum einstaklingi sem býr yfir góðri almennri tölvuþekkingu og íslenskukunnáttu. Nauðsynlegt er að umsækjandi sé þjónustulundaður og eigi gott með samskipti. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 25. júlí nk.


Starfskjör fara eftir kjarasamning ríkisins og SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu.

...
Meira

Aðalbjörg Signý Sigurvaldadóttir ráðin leikskólastjóri

| 29. júní 2016
Aðalbjörg Signý Sigurvaldadóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri við Leikskólann Lækjarbrekku meðan Ingibjörg Alma Benjamínsdóttir verður í fæðingarorlofi. Aðalbjörg útskrifaðist með B.Ed. í leikskólakennarafræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2006....
Meira
Eldri færslur

Facebook

Vefumsjón