A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sveitarstjórnarfundur 1253 í Strandabyggð - fundarboð

| 07. október 2016

Fundur nr. 1253 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn í þriðjudaginn 11. október 2016, kl. 16.00 í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík. Fundardagskrá er svohljóðandi:

...
Meira

Fundur með formanni Þroskahjálpar

| 06. október 2016

Miðvikudaginn 19. október kl. 16:30  verður formaður Þroskahjálpar, Bryndís Snæbjörnsdóttir, með fund í Hnyðju, Þróunarsetrinu að Höfðagötu 3 á Hólmavík. Kynning á starfi og stefnu Þroskahjálpar og umræður um málefni fatlaðs fólks.

Allir velkomnir

Austurtún 8 til sölu

Salbjörg Engilbertsdóttir | 29. september 2016

Fasteignin að Austurtúni 8 er til sölu  Hægt er að nálgast upplýsingar hér.  Einnig er mögulegt að sækja um leigu en þó aðeins til 3ja mánaða í senn þar sem íbúðin er á söluskrá.

Umsóknum um leigu skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar fyrir 7. október n.k. á eyðublaði sem má finna hér.  

Viðtalstími lánasérfræðings

Salbjörg Engilbertsdóttir | 26. september 2016
Lánasérfræðingar Byggðastofnunar verða til viðtals á skrifstofum Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða sem hér segir;

 -Patreksfirði 26.september kl. 15.00-16.30
 -Ísafirði 28.september kl. 15.00-17.00
 -Hólmavík 29.september kl.15.00-16.30

Núverandi og nýjir viðskiptavinir velkomir til að ræða lánamöguleika hjá Byggðastofnun.

Skrifstofa Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða á Hólmavík er staðsett á 3. hæð Þróunarsetursins.

Laust starf á Leikskólanum Lækjarbrekku

Salbjörg Engilbertsdóttir | 14. september 2016

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir starfsmanni í eldhús og ræstingu.

Um er að ræða 100% starf og þarf umsækjandi að geta hafið störf þann 1.nóv. næstkomandi. Í starfinu felst meðal annars að taka til fæði fyrir nemendur og starfsfólk, frágangur eftir matmálstíma, almenn ræsting á skólahúsnæði og afleysing inn á deild. Nánari starfslýsingu er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411 milli kl. 9:00 og 16:00 alla virka daga. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is


Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3 eða til leikskólastjóra, ásamt ferilskrá og meðmælum fyrir 1.okt. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur. 

Eldri færslur

Facebook

Vefumsjón