A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Menningarverðlaun 2019

| 21. maí 2019

Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar auglýsir eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Strandabyggðar árið 2019

Í ár verður Lóan, menningarverðlaun Strandabyggðar, veitt í tíunda skiptið. Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklings, félags, stofnunar, fyrirtækis eða hóps fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar í sveitarfélaginu á liðnu ári. Hefur sú hefð skapast að verðlaunaafhending fari fram við setningu Hamingjudaga. 

Ása Ketilsdóttir kvæða- og rímna skáld hlaut heiðursverðlaun og Dagrún Ósk Jónsdóttir, fyrir hönd Náttúrubarnaskólans, hlaut menningarverðlaunin 2018 en fyrri verðlaunahafar eru Sigríður Óladóttir kórstjórnandi, Leikfélag Hólmavíkur, Sauðfjársetrið (tvisvar sinnum), Grunnskólinn á Hólmavík, Þjóðfræðistofa á Ströndum, Einar Hákonarson listamaður og Steinshús við Djúp.

Öflugt lista og menningarstarf er verðmætt öllum samfélögum en ekki síst litlum sveitarfélögum á borð við Strandabyggð og því er dýrmætt að verðlauna það sem vel er gert.

Tilnefningum, ásamt rökstuðningi, má skila á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is til kl.16:00 fimmtudaginn 6.júní.

Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd skipar dómnefnd sem velur úr innsendum tillögum.

 

Sameining leik- og grunnskóla - fundur í dag í félagsheimilinu

| 16. maí 2019
Sæl öll,  í dag er fundur með foreldrum og öllum öðrum áhugasömum um hugsanlega sameiningu leik- og grunnskóla.  Fundurinn er kl 17.30-18.30 í Félagsheimilinu. Tómstundafulltrúi býður upp á barnagæslu í íþróttamiðstöð á sama tíma. Allir velkomnir.


Sveitarstjórnarfundur nr. 1289 í Strandabyggð

Salbjörg Engilbertsdóttir | 10. maí 2019

Fundur nr. 1289 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 14. maí 2019 kl 16:00 í Hnyðju.

Fundardagskrá er svohljóðandi:

1. Ársreikningur Strandabyggðar 2019 seinni umræða
2. Beiðni Jóns Jónssonar um lausn frá störfum í Umhverfis- og skipulagsnefnd
3. Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2019
4. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna framkvæmda
5. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna endurfjármögnunar á eldra láni
6. Skíðafélag Strandamanna: Styrkbeiðni vegna kaupa á nýjum snjótroðara.
7. Styrktarsamningar:
    a. Sauðfjársetur
    b. Íþróttafélagið Geislinn
    c. Héraðssamband Strandamanna
    d. Leikfélag Hólmavíkur
    e. Björgunarsveitin Dagrenning
    f. Félag eldri borgara
    g. Skíðafélag Strandamanna
    h. Golfklúbbur Hólmavíkur
8. Forstöðumannaskýrslur
9. Fundargerðir nefnda:
    a. Umhverfis- og skipulagsnefnd, 06.05.19
    b. Fræðslunefnd, 13.05.19
10. Fundargerð 870. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
11. Hafnarsamband Íslands, fundargerð 412 – til kynningar
12. Fundargerðir Siglingaráðs, nr. 10,11,12,13 – til kynningar
13. Samband íslenskra sveitarfélaga: umsögn um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun 2020-2024, 750, mál – til kynninga
14. Tillaga um nafnasamkeppni fyrir félagsheimili og íþróttamiðstöð.


Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Aðalbjörg Sigurvaldadóttir
Guðfinna Lára Hávarðardóttir
Ingibjörg Benediktsdóttir
Jón Gísli Jónsson
Pétur Matthíasson

Hamingjudagar 2019

| 08. maí 2019

 

Hamingjudagar verða haldnir 28. – 30.júní. Ég er að kanna áhuga einstaklinga, fyrirtækja og samtaka hér á svæðinu á þátttöku/sýnileika  þessa daga. Í fyrra var  t.d. vöfflukaffi í boði fyrir gesti og gangandi hjá Hólmadrangi og gekk það vel.

Ungmennin hér í Strandabyggð hafa komið með hugmyndir og hvatt okkur til að líta til fyrri daga. Þau eiga þá við hverfalitina, hverfagrill, marseringu, markað o.fl.

Vinsamlegast hittið mig í Hnyðju miðvikudaginn 15.maí kl.16-18,  sendið mér línu á tomstundafulltrui@strandabyggd.is  eða hringið í síma 4513511/6967046  ef þið viljið taka þátt eða eruð með hugmyndir.

kveðja
Aðalbjörg S. Sigurvaldadóttir
Tómstundafulltrúi 

Nýr byggingafulltrúi í Strandabyggð

| 08. maí 2019
Kæru Íbúar í Strandabyggð og aðrir hlutaðeigandi aðilar,

Það er mér ánægja að tilkynna að Grettir Örn Ásmundsson hefur verið ráðinn byggingarfulltrúi í Strandabyggð.  Grettir Örn er fæddur og uppalinn á Hólmavík en býr nú í Danmörku.  

 

Grettir Örn kláraði byggingafræði í UCN, University College Nord Jylland á norður Jótlandi í Danmörku árið 2017.  Hann vann á Íslandi hjá Zeppelin arkitektum í tvö ár en er nú starfandi hjá Stender í Kolding, þar sem starfi hans fellst í því að hanna svæði fyrir íbúðahverfi, veitingastaði, verslanir og bensínstöðvar. Hann er að auki smiður og hefur talsverða reynslu sem slíkur.

 

Grettir Örn er fjölskyldumaður, giftur Jónu Björgu Guðmundsdóttur og eiga þau hjón 3 börn; Mikael 5 ára, Kristbjörgu 10 ára og Natalíu 14 ára.  Jóna Björg er við nám í félagsráðgjöf í Danmörku.

Grettir Örn hefur störf 1. júlí og við bjóðum hann velkominn til starfa.







 

 

Eldri færslur

Facebook

Vefumsjón