A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Leikskólalóðin tekur á sig mynd

Þorgeir Pálsson | 18. ágúst 2025
« 1 af 4 »
Kæru íbúar Strandabyggðar,

Nú er unnið af kappi við að klára leikskólalóðina. Og það er ljóst að hér er um byltingu að ræða fyrir leikskólabörnin okkar.  Látum myndirnar tala sínu máli, en það er bjart framundan fyrir leikskólabörn í Strandabyggð!

kveðja
Þorgeir Pálsson
Oddviti

Laus staða kennara

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 13. ágúst 2025
Grunnskólinn á Hólmavík auglýsir lausa stöðu kennara í 50% tímabundið starf til eins árs skólaárið 2025-2026
Nánar um starfið og fleiri störf sem laus eru til umsóknar hér: http://www.strandabyggd.is/laus_storf/

Verðfyrirspurn vegna skólaaksturs í Strandabyggð, 2025/2026

Þorgeir Pálsson | 13. ágúst 2025

Strandabyggð gerir hér með verðfyrirspurn varðandi skólaakstur fyrir skólaárið 2025-2026.

Um er að ræða akstur með skólabörn leik- og grunnskóla í dreifbýli í Strandabyggð.  Tilboðsgjafi skal veita upplýsingar um bílakost, mönnun, bakgrunn, reynslu og þekkingu á staðháttum.  Tilboðsgjafi skal hafa hreina sakaskrá.  Bílstjóri og varabílstjóri, skulu hafa réttindi til aksturs skólabifreiðar.


Allar nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri, Þorgeir Pálsson í síma 899-0020.  Einnig má senda fyrirspurn á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is 

Frestur til að skila inn tilboðum er til loka dags 20. ágúst 2025.  Skólaakstur hefst 25. ágúst 2025.

Strandabyggð áskilur sér rétt til að taka því tilboði sem sveitarfélagið metur hagstæðast, eða hafna öllum.

Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps auglýsir eftir starfsfólki

Heiðrún Harðardóttir | 13. ágúst 2025

Starfsfólk óskast í félagslega liðveislu  og skammtímavistun á starfssvæði félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps.


Um er að ræða störf sem staðsett eru  Reykhólum.


Markmið starfsins er að styðja við daglegt líf og þátttöku í samfélaginu.


Laun eru samkvæmt kjarasamningum sambands íslenskra sveitarfélag og viðkomandi stéttarfélaga.


Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is

 

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni og uppruna um að sækja um.

 

Umsóknarfrestur er til og með  27. ágúst 2025

 

Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist Hlíf Hrólfsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.

Samþykkt um búfjárhald - opið fyrir athugasemdir

Heiðrún Harðardóttir | 13. ágúst 2025
Á sveitarstjórnarfundi nr. 1379, 12. ágúst 2025 voru lögð fram drög að Samþykkt um búfjárhald. 

Sveitarstjórn samþykkti að drög að samþykktinni væru gerð opinber á heimasíðu Strandabyggðar og að opið væri fyrir athugasemdir íbúa. Samþykktin verður þá unnin áfram með tilliti til athugasemda sem kunna að berast og mun fara fyrir sveitarstjórnarfund 9. september nk. 

Drög að samþykkt um búfjárhald í Strandabyggð má sjá hér: SAMÞYKKT um búfjárhald í Strandabyggð.docx 

Hægt er að senda inn athugasemdir vegna samþykktarinnar til skrifstofu Strandabyggðar í gegnum netfangið strandabyggd@strandabyggd.is. Opið er fyrir athugasemdir til og með 31. ágúst. 
Eldri færslur

Facebook

Vefumsjón