Landshlutakeppni á föstudaginn
Fjögur söngatriði koma frá félagsmiðstöðinni Ozon á Hólmavík. Það eru þær Brynja Karen Daníelsdóttir sem sigraði söngkeppni Ozon síðasta föstudag með lagið Svo smá, Andrea Messíana Heimisdóttir með frumsamda lagið og textann Leyndarmál, Sara Jóhannsdóttir með lagið Án þín og Gunnhildur Thelma Rósmundsdóttir sem mun flytja lagið Lítill drengur. Fjölmargir hljóðfæraleikarar úr hópi Ozon-krakka koma fram í atriðunum. Strandamenn eru sérstaklega hvattir til að mæta og hvetja sitt fólk til dáða á föstudaginn.
Það eru tómstundafulltrúi Strandabyggðar og unglingarnir í félagsmiðstöðinni Ozon sem sjá um framkvæmd og skipulagningu keppninnar sem er einn stærsti viðburður fyrir unglinga á Vestfjörðum. Allir eru boðnir hjartanlega velkomnir og hvattir til að taka þátt í skemmtilegri stemmingu. Að keppni lokinni verður haldið diskótek fyrir 8.-10. bekk. Þar stjórna þeir DJ Danni og DJ Darri tökkum og rafmixi. Miðaverð á dansleikinn er krónur 500.