Jólatónleikar Tónskólans
Allir íbúar Strandabyggðar og nágrannasveitarfélaga eru boðnir hjartanlega velkomnir.
Jóladagatal grunnskólana
Í dagatalinu segir frá fjölhæfum dýrum sem feta sig áfram í umferðinni. Á hverjum degi birtist ný spurning sem grunnskólabörn geta svarað þegar þau opna jóladagatalið á umferd.is/joladagatal. Tveir heppnir þátttakendur eru dregnir út á hverjum degi og fá þeir tvo bíómiða hvor. Krisján Rafn Jóhönnuson nemandi í 6. bekk datt í lukkupottinn 4. desember og fékk tvo bíómiða að launum fyrir að svara rétt þann daginn.
Kristján Rafn hefur merkt sín svör með nafni bekkjar og skóla en þannig kemst bekkurinn í sérstakan bekkjarverðlaunapott. Í janúar verður svo einn heppinn bekkur dreginn út og hlýtur hann að launum pítsuveislu og DVD mynd.
Til hamingju með vinninginn Kristján Rafn!
Jóladagatal grunnskólanna er í gangi frá 1. til 24. desember
Kveikt á jólatrénu viđ grunnskólann
Undanfarin ár hefur vinabær Hólmavíkur Hole í Noregi gefið jólatré sem tendrað hefur verið við grunnskólann við hátíðlega athöfn. Því miður verður ekki af því í ár að vinir okkar frá Noregi komi í heimsókn.
Jólatréið sem mun prýða lóð grunnskólans í ár er gefið af Lionsmönnum á Hólmavík. Kunnum við þeim þakkir fyrir þetta rausnarlega framlag.
Nemendur syngja jólasöngva og heitt kakó og piparkökur verða á boðstólnum.
Við vonumst til að sjá sem flesta við þetta tækifæri.
Jólaföndur foreldrafélagsins
Jólaföndur foreldrafélagsins fer fram í félagsheimilinu miðvikudaginn 4. desember frá 17.00 til 19.00
Hægt verður að kaupa föndur á staðnum frá 250 krónum og upp í 1250 krónur.
Það væri mjög gott ef börn og fullorðnir tæku með sér skæri og blýanta.
Það er að sjálfsögðu í boði að koma með föndur að heiman og föndra það í góðra vina hópi uppi í félagsheimili.
Allir eru velkomnir, mamma, pabbi, systkini, ömmur og afar og frænkur og frændur og vinir og vinkonur.
Tilvonandi Danmerkurfarar munu standa fyrir kaffiveitingum og kræsingum á góðum kjörum.
Ef við verðum heppin verður kannski jólasveinn kominn á stjá sem mun þá koma og kíkja á jólaföndrið hjá okkur.
Fjölmennum og eigum góða og notalega jólaföndurstund í félagsheimilinu J
- Foreldrafélag Grunnskólans á Hólmavík.
Nýr kennari
Kristjana Eysteinsdóttir hefur verið ráðin til starfa við grunnskólann. Kristjana tekur við umsjón í 5. bekk af Sóley Ósk sem er á leið í fæðingarorlof um næstu mánaðamót. Kristjana mun hefja störf nú í vikunni.
Tvær umsóknir bárust um starfið.
Kristjana hefur starfað áður við skólann en hún er grunnskólakennari að mennt. Þekking og reynsla Kristjönu mun nýtast vel í þessum nemendahóp en Kristjana kenndi einmitt þessum sama nemendahóp þegar þau voru í 3. bekk.
Við bjóðum Kristjönu velkomna til starfa.
Nýr stuđningsfulltrúi
Árný Huld Haraldsdóttir hefur verið ráðin sem stuðningsfulltrúi við grunnskólann. Árný Huld hefur verið í fæðingarorlofi og mun hefja störf strax að því loknu.
Fjölmargar fyrirspurnir bárust en einungis ein umsókn.
Árný Huld hefur starfað undanfarin ár við skólann sem leiðbeinandi og sem stuðningsfulltrúi. Þekking og reynsla hennar mun verða kærkomin viðbót við stoðþjónustu skólans.
Við bjóðum Árný Huld velkomna til starfa.
Vegna fćđingarorlofs vantar kennara viđ Grunnskólann á Hólmavík
Vegna fæðingarorlofs vantar kennara við Grunnskólann á Hólmavík frá desember 2013.
Menntun, reynsla og hæfni:
- Grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu í grunnskóla
- Kennslureynsla
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Jákvæðni, ábyrgðarkennd og faglegur metnaður
- Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvægir eiginleikar.
Umsækjendur skulu hafa hreint sakarvottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 21. nóvember 2013
Nánari upplýsingar veita
Hulda Ingibjörg Rafnarsdóttir, skólastjóri, sími 451 3129 og 698 0929
Ingibjörg Emilsdóttir, aðstoðarskólastjóri, sími 451 3129 og 695 4743
Umsóknum með starfsferilsskrá, sakavottorði og afriti af prófskírteinum ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist Huldu I. Rafnarsdóttur á skolastjorar@holmavik.is eða Grunnskólinn á Hólmavík, Skólabraut 20-22, 510 Hólmavík
Ţemadagar 2013
Í dag lauk hinum frábæru þemadögum Grunnskólans á Hólmavík og af því tilefni var opið hús. Fjöldi gesta mætti og virti fyrir sér afurðir nemenda. Þeir hafa verið að vinna að ýmsum verkefnum síðustu daga undir leiðsögn afar fjölhæfs starfsmannahóps sem bauð uppá fimm smiðjur. Þær voru eftirfarandi: fígúrugerð, mosaiksmiðja, hljóðfærasmiðja, matarsmiðja og leiktækjasmiðja. Myndir frá þemadögum er hægt að sjá hér.

Opiđ hús og baráttudagur gegn einelti
Á morgun, föstudaginn 8. nóvember verður opið hús í skólanum frá kl. 13.00 - 14.30.
8. nóvember baráttudagur gegn einelti og þennan dag ljúkum við vinnu á þemadögum. Í tilefni af baráttudegi gegn einelti munum við hefja opnunina með því að hringja skólabjöllunni í 7 mínútur, eina mínútu fyrir hvern dag vikunnar. Gestum gefst tækifæri til að skrifa undir þjóðarsáttmála um baráttu gegn einelti.
Á opnu húsi verður vinna nemenda á þemadögum sem unnin var í fimm smiðjum til sýnis. Nemendur hafa hannað hlóðfæri og leiktæki. Mjúkar furðufígúrur hafa litið dagsins ljós og merki skólans er að taka á sig mynd í stóru mósaik verki. Ekki má gleyma kræsingunum sem nemendur hafa bakað og verður gestum boðið að smakka.
Allir velkomnir
- Nemendur og starsfólk