Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Þá eru jólin á enda runninn.

Í gær var voru jólin kvödd með brennu og flugeldasýningu sem Kiwanismenn sáu um eins og undanfarin ár. Hér er smá myndband af gleðinni.

Farið upp á Smjörvatnsheiði

Á milli hátíða fóru nokkrir félagar í björgunarsveitinni Vopna upp að Vaðlabúð á Smjörvatnsheiði til að færa búnað úr gamla skýlinu í það nýja sem Síminn og Minjavernd reistu í fyrra. Húsið verður því ólæst til reynslu en ef það gengur ekki vel þá verður lyklaboxi komið fyrir utaná og húsinu læst. Neyðartalstöð, gas til hitunar og neyðarfæði er í húsinu og er hægt að kalla eftir hjálp í gegnum Nesradío á rás 16 en einnig er gsm samband eina þrjá metra suðaustur af húsinu. Þeir sem ætla að gista í húsinu verða að gera það í samráði við Björgunarsveitina Vopna en hún er með húsið til umsjónar. Ekki hefur verið ákveðið með gistigjöld en þau verða líklega álíka og hjá 4x4 í hinum símahúsunum.

Þakklæðning að fjúka af frystigeymslu HB Granda.

Í gær, nýársdag, var björgunarsveitin Vopni beðinn um aðstoð vegna þakdúks sem var að losna á frystigeymslu HB Granda. Um 11 manns tóku þátt í aðgerðinni sem tókst vel en mokað var í eina 100 sandpoka og þeir hífðir upp með kranabíl og þeim dreift um þakið til að hefta dúkinn. Óvenju mikill erill hefur verið á björgunarmönnum í kringum þessi áramót en þrátt fyrir hátíðarhöldin hefur mætingin í útköllin verið mjög góð og eiga menn heiður skilið.

Nokkrar myndir teknar á gamlársdagskvöld.

Hér eru nokkrar myndir sem ég tók á gamlárskvöld á brennunni og um miðnætti í ágætis veðri.

Mikið tjón á Vopnafirði í óveðrinu.

Þak fauk af fjárhúsi í Syðri-Vík í gærkvöldi en vindhraðinn var yfir 50 m.s. þegar mest gekk á. Bóndinn var að vitja um féð og var inni í húsunum þegar þakið fór en hann sakaði ekki. Einnig flettist þak af fjárhúsi og hlöðu á Rauðhólum og dreifðist yfir tún...
Meira
Færslusafn frétta

RSS

22.05.2012 | Fréttablaðið Vísir

Aflaverðmæti eykst um 28,1 prósent milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,1 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2012 samanborið við 23,5 milljarða á sama tí...
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón