Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Fyrsta loðnan komin í land á Vopnafirði.

Lundey við bryggju í hádeginu
Lundey við bryggju í hádeginu
« 1 af 2 »
Í hádeginu í dag kom Lundey NS með um 1000 tonn af fallegri loðnu sem veiddist Austur úr Langanesi. Fékkst aflinn í þremur holum svo eitthvað er að finna á svæðinu. Nokkur skip eru í hnapp austur af nesinu og eru að fá ágætis afla.

Varað við stormi.

Veðurstofa Íslands spáir aftakaveðri um allt land í dag, fyrst vestanlands, en svo mun verra fyrir norðan og austan þegar líður á daginn. Það er búið að vera austanfíla í morgun hér á Vopnafirði en núna er hann að snúa sér í suðvestan en það verður væntanlega gott veður fram yfir 18 en fljótlega eftir það gengur í norðvestan hvassviðri og það ætti að standa sem hæst á milli 21 og 23 en lægir svo fljótt og verður suðvestan gola í fyrramálið.

Kvenfélagið Lindin leitar eftir umsóknum.

Frá úthlutuninni í fyrra.
Frá úthlutuninni í fyrra.
Nú er komið að árlegri úthlutun styrkja Menntasjóðs Lindarinnar. Þetta er í 14 skipti sem sjóðurinn styrkir námsfólk. Alls hafa 36 einstaklingar hlotið styrki, 35 konur og einn karl. Forgang að styrkjum hafa konur. Umsóknir skulu berast eigi síðar en 23. desember 2011 til Ágústu Þorkelsdóttur, Steingerðar Steingrímsdóttur eða Þórunnar Egilsdóttur.

Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall.

Hrönn og Jón með nokkrum hressum krökkum í morgun.
Hrönn og Jón með nokkrum hressum krökkum í morgun.
« 1 af 3 »
Í morgun fóru fulltrúar frá björgunarsveitinni Vopna og Slysavarnardeildinni Sjöfn í alla bekki grunnskólans á Vopnafirði og gáfu börnunum endurskinsmerki og Neyðarkall. Þessar heimsóknir eru hluti af árlegum forvarnarverkefnum slysavarnardeildarinnar Sjafnar og Vopni fékk fyrirtækin Bílar og Vélar, Bræður ehf og Háahraun til gefa Neyðarkallana. Mikil ánægja var meðal barnanna þegar Hrönn frá Sjöfn og Jón frá Vopna komu færandi hendi í morgun.

Sjáumst í umferðinni og notum endurskinsmerki.

Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda.

Þorsteinn Steinsson sveitastjóri Vopnafjarðarhrepps.
Þorsteinn Steinsson sveitastjóri Vopnafjarðarhrepps.

Síðasta föstudag seldu Vopnfirðingar allan sinn hlut í útgerðarfélaginu HB Granda. Þetta kemur fram á vefnum visr.is í kvöld. Þar kemur fram að Vopnarfjarðarhreppur hafi  selt hlut sinn í Granda fyrir tæplega hálfan milljarð króna. Sveitarstjóri hreppsins segir söluna styrkja fjárhag sveitarfélagsins verulega.


Samkvæmt visir.is gekk sala sveitarfélagsins á hlutnum gegn sl. föstudag, en samanlagður hlutur hreppsins og Skiphólma ehf., félags í eigu hans, nam um 2,5 prósentum af heildarhlutafé.

...
Meira
Færslusafn frétta

RSS

22.05.2012 | Fréttablaðið Vísir

Aflaverðmæti eykst um 28,1 prósent milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,1 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2012 samanborið við 23,5 milljarða á sama tí...
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón