Hirðfíflin að gera góða hluti, safna peningum í sjálfboðavinnu og gefa til þurfandi.
Það er merkilegt starf sem fer fram hér á Vopnafirði en það eru nokkrar varskar konur sem safna peningum í sjálfboðavinnu og gefa til þeirra sem þurfa á því að halda. Það eru þær Þorgerður Jósepsdóttir, Gyða Jósepsdóttir, Steinunn Gunnarsdóttir og Hrafnhildur Helgadóttir sem kalla sig Hirðfíflin. Þær reka nytjamarkað í bakherbergi handverkshússins „Nema hvað" með hluti sem þeim er gefið af fólki sem ekki hefur þörf fyrir en tímir ekki að henda. Þetta selja þær svo á vægu verði og gefa alla peningana til góðgerðamála hér á Vopnafirði. ...
Meira
