Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall.

Hrönn og Jón með nokkrum hressum krökkum í morgun.
Hrönn og Jón með nokkrum hressum krökkum í morgun.
« 1 af 3 »
Í morgun fóru fulltrúar frá björgunarsveitinni Vopna og Slysavarnardeildinni Sjöfn í alla bekki grunnskólans á Vopnafirði og gáfu börnunum endurskinsmerki og Neyðarkall. Þessar heimsóknir eru hluti af árlegum forvarnarverkefnum slysavarnardeildarinnar Sjafnar og Vopni fékk fyrirtækin Bílar og Vélar, Bræður ehf og Háahraun til gefa Neyðarkallana. Mikil ánægja var meðal barnanna þegar Hrönn frá Sjöfn og Jón frá Vopna komu færandi hendi í morgun.

Sjáumst í umferðinni og notum endurskinsmerki.

Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda.

Þorsteinn Steinsson sveitastjóri Vopnafjarðarhrepps.
Þorsteinn Steinsson sveitastjóri Vopnafjarðarhrepps.

Síðasta föstudag seldu Vopnfirðingar allan sinn hlut í útgerðarfélaginu HB Granda. Þetta kemur fram á vefnum visr.is í kvöld. Þar kemur fram að Vopnarfjarðarhreppur hafi  selt hlut sinn í Granda fyrir tæplega hálfan milljarð króna. Sveitarstjóri hreppsins segir söluna styrkja fjárhag sveitarfélagsins verulega.


Samkvæmt visir.is gekk sala sveitarfélagsins á hlutnum gegn sl. föstudag, en samanlagður hlutur hreppsins og Skiphólma ehf., félags í eigu hans, nam um 2,5 prósentum af heildarhlutafé.

...
Meira

Fyrsta útkallið á nýja veginn um Vesturárdal.

úr myndasafni
úr myndasafni
Um eitt leitið í nótt kallaði Neyðarlínan út björgunarsveitina Vopna til að losa fastann bíl í Vesturárdal skammt innan við Hauksstaði. Gekk vel að losa bílinn og voru bjorgunarmenn komnir til baka rúmlega tvö. Mjög lélegt símasamband er á svæðinu en erfilega gekk að ná í hjálp sökum þess.

Hákarlaveiði á Vopnafirði

Það hefur loðað við Vopnafjörð að hér séu miklir veiðimenn og hafa þeir verið duglegir að draga björg í bú. Ég rakst á þetta 21 ára gamla myndskot frá Vopnafirði af hákarlaveiðimönnum þar sem Þorsteinn joð talar við nokkra kappa, sumir eru komnir á aðrar veiðilendur en aðrir eru enn hér sprækir að vanda....
Meira

Neyðarkall björgunarsveitana.

Neyðarkallinn í ár er Skíðakona.
Neyðarkallinn í ár er Skíðakona.
Dagana 3.-6. nóvember n.k. fer fram fjáröflunarátakið Neyðarkall björgunarsveita. Líkt og áður er um að ræða sölu á litlum neyðarkalli á lyklakippu sem nú er eftirlíking af fjallaskíðakonu. Sjálfboðaliðar björgunarsveitanna munu bjóða hann til sölu um allt land á 1.500 krónur þessa fjóra daga á meðan átakið stendur. Ég hvet alla Vopnfirðinga til þess að taka vel á móti okkar fólki. Aukin verkefni björgunarsveitanna kalla á meira fé til starfseminnar og er þetta okkar leið til að bregðast við því. Almenningur er því hvattur til þess að stuðla að eigin öryggi með stuðningi í þessu átaki....
Meira
Færslusafn frétta
Augnablik... Loading...
Vefumsjón