Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Vopni og Neyðarlínan í samstarfi.

Í dag fóru félagar í björgunarsveitinni Vopna með starfsmann Neyðarlínunnar upp á Hellisheiði til viðgerða en þar eru loftnet og sendibúnaður sem vaktstöð siglinga notar til að taka á móti skeytum frá skipum og bátum á norð-austurmiðum.  Voru sett upp tvö ný loftnet í stað þeirra sem voru biluð og gekk það verk vel og ættu bátar og skip að vera komin í gott samband við vaktstöðina núna.

Óvenju lítill snjór er á veginum upp á Hellisheiði miðað við árstíma og ekki reyndist mikið mál að komast upp á vel búnum björgunarsveitarbílum þrátt fyrir brattann og aðstæður .

Skrifaðu athugasemd:


RSS

22.05.2012 | Leikskólinn

Sveitaferðir :)

Á morgun miðvikudag, fara börnin á Dagsbrún í sveitaferð uppí Refstað og á fimmtudag fara börnin á Ásbrún. Báða daganna verður lag...
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón