Vélsleðamenn komumst yfir Þjóðveg eitt.
Á föstudaginn var farið í Heiðina á sleðum og keyrt upp á flest fjöll sem á leið manna urðu. Þegar að þjóðvegi 1 var komið í Langadal var afráðið að taka áhættuna og fara yfir veginn og gekk það bara ágætlega. Þegar þessum afanga var náð og menn búnir að jafna sig eftir afrekið var farið inn í Möðrudal þar sem bóndinn bauð okkur uppá kaffi og kökur enda ekki á hverjum degi sem menn koma á sleðum frá Vopnafirði. Hafði Vilhjálmur bóndi orð á því að það hefði síðast gerst þegar hann var nýbúinn að kaupa „Gula vélsleðann" fyrir fermingapeningana.
Þegar búið var að drekka kaffið og spjalla stuttlega við Möðrudælinga var sett bensín á sleðana og haldið af stað í átt að Vopnafirði. Var farið yfir Einbúasand og Víðidalsfjallgarða og komið við í Vestarahúsi á Haug. Þaðan var farið í Austarahús síðan vestan og norðan við Mælifell og yfir Selá við Fagurhól og eins og leið liggur yfir í Vesturárdal.
Sleðafæri var með besta móti og sama hvar farið var, allt slétt og fellt .
Skrifaðu athugasemd:
Fleiri fréttir
- 31. mars 2012
Árshátíð Vopnafjarðarskóla 2012 - 26. mars 2012
Hollráð Hugos Þriðjudaginn 27. mars, kl. 20:00 í Vopnafjarðarskóla - 12. mars 2012
Fjölmenn æskulýðsmessa gleðinnar - 09. mars 2012
Vopnfirskir unglingar láta til sín taka - 07. mars 2012
Ekki nóg að kanna lífeyrisréttindin korteri fyrir töku lífeyris - fundur í kvöld á Vopnafirði - 21. febrúar 2012
Þar sem himininn frýs við jörð - 21. febrúar 2012
Tveir fluttir á sjúkrahús. - 11. febrúar 2012
Einn einn tveir dagurinn, 112: Ekki hika – hringdu til öryggis - 24. janúar 2012
Blakgellur svífa - 05. janúar 2012
Lífið er Milljón. - 05. janúar 2012
Fyrsta loðnan komin í land á Vopnafirði. - 24. desember 2011
Varað við stormi. - 08. desember 2011
Kvenfélagið Lindin leitar eftir umsóknum. - 07. desember 2011
Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall. - 05. desember 2011
Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda.
RSS
22.05.2012 | Ari Hallgríms
Gamla myndin
Björn H Víglundsson (Hebbi) Hallgrímur Helgason
Fleiri blogg
- 22.05.2012
Real Madrid hefur augastað á Silva - 22.05.2012
NBA í nótt: Oklahoma sló út Lakers - 21.05.2012
Alex Leví 3 ára. - 21.05.2012
Húnabjörgin sækir vélarvana bát - 20.05.2012
Myndir 8.maí
