Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Veðrið orðið skaplegt

Nú er veðrið að mestu gengið niður og búið að ryðja götur bæjarins svo líklegt er að kjörbúð kauptúnsins verði opin á morgun. Vonsku veður var í allan dag og á tíma sást ekki á milli húsa enda veðurhæð mjög mikil allt að 25 metrum á sekúndu.

Sumir þurftu starfa sinna vegna að vera á ferðinni eins og stafsfólk Sundabúðar og aðstoðaði björgunarsveitin það fólk bæði til og frá vinnu í dag.

Veðurspáin er svona fyrir morgundaginn, Norðlæg átt, 8-15 og él í nótt, en hægari norðaustan átt og úrkomulítið um tíma á morgun. Frost 3 til 10 stig

Skrifaðu athugasemd:


RSS

22.05.2012 | Ari Hallgríms

Gamla myndin

Björn H Víglundsson (Hebbi) Hallgrímur Helgason
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón