Unnið að lausn vegna frárennslismála
Ákveðin vandamál hafa komið upp vegna frárennslis frá uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði. Stjórnendur félagsins hafa fengið verkfræðistofuna EFLU til þess að gera úttekt á frárennslis- og mengunarmálum með það að markmiði að leysa vandamálið til frambúðar. Vinnslustöðvun í byrjun vikunnar var að fullu nýtt til að endurbæta og lagfæra núverandi búnað og eins má nefna að nú þegar er hafin hreinsun á fjörum í samvinnu við og undir stjórn Vopnafjarðarhrepps.
Vegna þessa hefur HB Grandi sent út yfirlýsingu og afsökunarbeiðni til íbúa á Vopnafirði og hefur bréf þar að lútandi verið borið út í öll hús á staðnum. Undir bréfið ritar Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarsviðs HB Granda:
,,Í sumar hefur viljað brenna við að fita og grútur frá starfsemi félagsins á Vopnafirði hafi borist í fjörur staðarins. Grútarmengunin hefur valdið íbúum Vopnafjarðar óþægindum og biðst félagið velvirðingar á því.
Ástæða þess hafa verið bilanir í búnaði, dælum o.þ.h. og að frárennsli var mun meira en menn áttuðu sig á. Þrátt fyrir að ýmislegt hafi verið gert til að hemja frárennslislögn virðist sem enn og aftur leiki endi hennar lausum hala.
Það hefur aldrei verið unnið annað eins magn af síld og makríl í uppsjávarfrystihúsinu og nú í sumar. Nú er t.d. búið að frysta rúm 7.500 tonn af afurðum á móti 1.200 tonnum í fyrra. Við þessa vinnslu er að falla til gífurlegt magn af fitu og hafa tæki okkar og úrræði greinilega ekki verið nægilega viðbúin því.
Við munum gera það sem í okkar valdi stendur til að koma fráveitumálum okkar í fyrirmyndarlag. Nú er verið að auka afköst dælingar og fituhreinsunar í vinnslunni. Við erum að láta kafa með útrásarlögninni og munum koma henni í lag.
Við höfum í samvinnu við og undir forystu sveitarfélagsins hafið hreinsun í fjörunni.
Við höfum falið verkfræðistofunni EFLU að gera úttekt á fráveitumálum okkar, útrás og fituhreinsun og óskað eftir því að þeir hefji vinnu við verkið sem allra fyrst.
Við biðjum íbúa Vopnafjarðar enn og aftur afsökunar á þessu. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma fráveitumálum okkar í fyrirmyndarlag og hraða því ferli eins og hægt er."
Skrifaðu athugasemd:
Fleiri fréttir
- 31. mars 2012
Árshátíð Vopnafjarðarskóla 2012 - 26. mars 2012
Hollráð Hugos Þriðjudaginn 27. mars, kl. 20:00 í Vopnafjarðarskóla - 12. mars 2012
Fjölmenn æskulýðsmessa gleðinnar - 09. mars 2012
Vopnfirskir unglingar láta til sín taka - 07. mars 2012
Ekki nóg að kanna lífeyrisréttindin korteri fyrir töku lífeyris - fundur í kvöld á Vopnafirði - 21. febrúar 2012
Þar sem himininn frýs við jörð - 21. febrúar 2012
Tveir fluttir á sjúkrahús. - 11. febrúar 2012
Einn einn tveir dagurinn, 112: Ekki hika – hringdu til öryggis - 24. janúar 2012
Blakgellur svífa - 05. janúar 2012
Lífið er Milljón. - 05. janúar 2012
Fyrsta loðnan komin í land á Vopnafirði. - 24. desember 2011
Varað við stormi. - 08. desember 2011
Kvenfélagið Lindin leitar eftir umsóknum. - 07. desember 2011
Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall. - 05. desember 2011
Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda.
RSS
NBA í nótt: Oklahoma sló út Lakers
Fleiri blogg
- 22.05.2012
Barcelona vill fá Zabaleta - 22.05.2012
Veðurlýsing - 21.05.2012
Alex Leví 3 ára. - 21.05.2012
Húnabjörgin sækir vélarvana bát - 20.05.2012
Myndir 8.maí
