Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Unglingdeild Vopna í útilegu.

Um helgina fóru krakkar úr unglingadeild Vopna í ferð að Arnarvatni eða Skálamó eins og það hét árum áður. Gengið var frá Kálffelli en þangað var krökkunum keyrt af Sundlaugarrútunni. Gist var ein nótt á Arnarvatni og síðan var gengið þaðan morguninn eftir niður að Hauksstöðum. Hægt er að ímynda sér að það sé mikið fjör þar sem tuttugu hressir unglingar koma saman og svo var það líka núna. Farið var í leiki úti og inni, spilað á gítar og sungið eins og enginn væri morgundagurinn. Markmiðið með svona ferð er að kenna þeim undirstöðu í ferðamennsku og að hafa gaman af lífinu. Auðvitað var myndavélin höfð með og nokkrar myndir teknar.

Athugasemdir

#1

Sigrún Jóh., miðvikudagur 29 september kl: 09:32

Ohhh ... það sem ég öfunda ykkur. Ekkert sem jafnast á við heiðina 'heima' og Arnarvatn, ófáar minningar þaðan frá því maður var krakki. Takk fyrir að halda þessari síðu úti Jón, alltaf gaman að geta fylgst smá með.

#2

Jón Sigurðarson, miðvikudagur 29 september kl: 11:19

Sæl Sigrún, Já , það er alltaf gaman að koma á Arnavat.. Takk fyrir heimsóknina :)

Skrifaðu athugasemd:


RSS

22.05.2012 | Fréttablaðið Vísir

NBA í nótt: Oklahoma sló út Lakers

Oklahoma City heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta en liðið tryggði sér í nótt sæti í lokaú...
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón