Töðugjöld í Vopnafirði.
Töðugjöld voru haldin í sveitinni í gær með góðri veislu í Staðarholti. Farið var í leiki með börnunum og ýmislegt annað gert til skemmtunar.Hvað eru töðugjöld og slægjur?
Töðugjöld voru dálítill glaðningur, sem heimilisfólki var gefinn, þegar búið var að alhirða töðuna af túninu. Auðvitað fór það eftir efnum , ástæðum og lundarfari húsráðenda, hversu vel hann var útilátinn, en langalgengast mun hafa verið að gefa kaffi, sem einu sinni var reyndar hátíðardrykkur, og pönnukökur eða annað bakkelsi, sem á hverjum tíma þótti eftirsóknarverðast.
Brennivínstár gáfu þeir húsbændur, sem betur máttu og vildu. En matarveisla mun hafa verið sjaldgæf af þessu tilefni, enda númeti ekki enn á boðstólum. Miklu betur var veitt fyrr á tímum, þegar engjaslætti lauk og heyskapnum þar sem að fullu. Enda var þá oftast komið langt fram eftir september og fé komið af fjalli, svo að hægt var að slátra til veislunnar. Þessi matarveisla hét frá fornu fari slægjur, slagar eða slagi. Hún var algeng víðsvegar um land fram undir síðustu aldamót og sumstaðar lengur.
Skrifaðu athugasemd:
Fleiri fréttir
- 31. mars 2012
Árshátíð Vopnafjarðarskóla 2012 - 26. mars 2012
Hollráð Hugos Þriðjudaginn 27. mars, kl. 20:00 í Vopnafjarðarskóla - 12. mars 2012
Fjölmenn æskulýðsmessa gleðinnar - 09. mars 2012
Vopnfirskir unglingar láta til sín taka - 07. mars 2012
Ekki nóg að kanna lífeyrisréttindin korteri fyrir töku lífeyris - fundur í kvöld á Vopnafirði - 21. febrúar 2012
Þar sem himininn frýs við jörð - 21. febrúar 2012
Tveir fluttir á sjúkrahús. - 11. febrúar 2012
Einn einn tveir dagurinn, 112: Ekki hika – hringdu til öryggis - 24. janúar 2012
Blakgellur svífa - 05. janúar 2012
Lífið er Milljón. - 05. janúar 2012
Fyrsta loðnan komin í land á Vopnafirði. - 24. desember 2011
Varað við stormi. - 08. desember 2011
Kvenfélagið Lindin leitar eftir umsóknum. - 07. desember 2011
Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall. - 05. desember 2011
Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda.
RSS
NBA í nótt: Oklahoma sló út Lakers
Fleiri blogg
- 22.05.2012
Barcelona vill fá Zabaleta - 22.05.2012
Veðurlýsing - 21.05.2012
Alex Leví 3 ára. - 21.05.2012
Húnabjörgin sækir vélarvana bát - 20.05.2012
Myndir 8.maí
