Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Þjóð til þings - Borgarafundur á Egilsstöðum 5. október um endurskoðun stjórnarskrárinnar

Stjórnlaganefnd og Samband sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi halda borgarafund um endurskoðun stjórnarskrárinnar á Hótel Héraði þriðjudaginn 5. október frá klukkan 20:00- 22.00. Fundurinn er kynningafundur um stjórnlagaþing og Þjóðfund 2010 auk þess sem kallað er eftir sjónarmiðum íbúa.

Stjórnlaganefnd var kosin af Alþingi í sumar til þess að undirbúa endurskoðun stjórnarskrárinnar. Nefndinni er ætlað að finna og leggja fram gögn fyrir stjórnlagaþing, standa fyrir Þjóðfundi um endurskoðun á stjórnarskrá, vinna úr upplýsingum frá fundinum og afhenda stjórnlagaþingi og loks að leggja fram hugmyndir að breytingum á stjórnarskránni.

Guðrún Pétursdóttir formaður stjórnlaganefndar: ,,Við viljum kynna Austfirðingum þau áform sem eru uppi um endurskoðun á stjórnarskrá lýðveldisins. Við sem stöndum að undirbúningum óskum einnig eftir því að fá að heyra sjónarmið fólks um hvernig samfélag það vill byggja. Við hvetjum Austfirðinga til að koma á fundinn og láta rödd sína heyrast.“

Nánari upplýsingar gefur: Berghildur Erla Bernharðsdóttir,
upplýsingafulltrúi,
GSM: 694-5149
berghildur@stjornlagathing.is

Skrifaðu athugasemd:


RSS

22.05.2012 | Fréttablaðið Vísir

Sendiherra Þýskalands gagnrýnir "aðalritstjóra“ Morgunblaðsins

Sendiherra Þýskalands á Íslandi, Hermann Sausen, segir í opnu bréfi til "aðalritstjóra" Morgunblaðsins í dag, að hann furði sig mj...
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón