Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

TF-LÍF á Vopnafirði.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, kom á Vopnafjörð um hádegið í dag. Tilgangurinn var sá að kynna viðbragsaðilum á staðnum þyrluna og hvernig á að umgangast hana í aðgerðum. Þyrlusveitin nýtti ferðina með því að koma við hér en þeir héldu svipaða sýningu á Þórshöfn í gær en þar verður haldin stórslysaæfing á morgun.

Þegar hún flaug inn yfir þorpið og var búin að taka einn hring þá stoppaði hún yfir leikskólanum og "hékk" þar yfir í smá stund en það vakti mikla kátínu hjá smáfólkinu eins og gefur að skilja en síðan lenti hún á fótboltavellinum þar sem fólk kom skoðaði gripinn.

Skrifaðu athugasemd:


RSS

22.05.2012 | Fréttablaðið Vísir

Sendiherra Þýskalands gagnrýnir "aðalritstjóra“ Morgunblaðsins

Sendiherra Þýskalands á Íslandi, Hermann Sausen, segir í opnu bréfi til "aðalritstjóra" Morgunblaðsins í dag, að hann furði sig mj...
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón