Skólaskipið Sæbjörg á Vopnafirði
Slysavarnarskóli sjómanna er mikið þarfa þing enda gera
slysin ekki boð á undan sér. Í dag var Sæbjörgin á Vopnafirði þar sem
sjómönnum gafst kostur á að fræðast um hættur hafsins og æfa viðbrögð
við slysum.
Skömmu eftir stofnun
Slysavarnaskóla sjómanna var varðskipið Þór keypt af íslenska ríkinu til
nota við fræðslu sjómanna í öryggismálum. Var skipinu gefið nafnið
Sæbjörg og gerðar á því nauðsynlegar breytingar til að hægt yrði að
halda uppi kennslu í bóklegum og verklegum fræðum um öryggismál
sjómanna. Tilgangur með að hafa skip undir starfsemi Slysavarnaskóla
sjómanna var sá að hægt yrði að fara með skólann á helstu verstöðvar
landsins til námskeiðahalds.
Sumarið
1998 eignaðist Slysavarnafélag Íslands, nú Slysavarnafélagið
Landsbjörg, nýtt skip til að leysa það eldra af hólmi. Þá gaf
ríkisstjórn Íslands félaginu ferjuna Akraborg til nota fyrir starfsemi
Slysavarnaskóla sjómanna. Skipið var þá um það bil að hætta siglingum
vegna tilkomu Hvalfjarðarganganna. Var skipinu gefið nafnið Sæbjörg er
það var afhent 12. júlí þ.á. Fóru fram umtalsverðar breytingar á skipinu
svo það hentaði til nota sem skólaskip en starfsemi Slysavarnaskóla
sjómanna hófst í nýrri Sæbjörgu í október 1998.
Frá byrjun maí
til seinni parts septembermánaðar á hvert fer Sæbjörg milli hafna
innanlands með námskeið fyrir sjómenn í öryggismálum.
Helstu mál:
Lengd: 68,79 m
Breidd: 11,15 m
Djúprista: 3,50 m
Brúttótonn: 1774 tonn
Aðalvélar: Nohab Polar 1700 kW.
Ganghraði: 11,5 hnútar
Áhöfn: 8
Smíðastaður: Trondhjems Mek. Verksted, Noregi 1974
Skrifaðu athugasemd:
Fleiri fréttir
- 31. mars 2012
Árshátíð Vopnafjarðarskóla 2012 - 26. mars 2012
Hollráð Hugos Þriðjudaginn 27. mars, kl. 20:00 í Vopnafjarðarskóla - 12. mars 2012
Fjölmenn æskulýðsmessa gleðinnar - 09. mars 2012
Vopnfirskir unglingar láta til sín taka - 07. mars 2012
Ekki nóg að kanna lífeyrisréttindin korteri fyrir töku lífeyris - fundur í kvöld á Vopnafirði - 21. febrúar 2012
Þar sem himininn frýs við jörð - 21. febrúar 2012
Tveir fluttir á sjúkrahús. - 11. febrúar 2012
Einn einn tveir dagurinn, 112: Ekki hika – hringdu til öryggis - 24. janúar 2012
Blakgellur svífa - 05. janúar 2012
Lífið er Milljón. - 05. janúar 2012
Fyrsta loðnan komin í land á Vopnafirði. - 24. desember 2011
Varað við stormi. - 08. desember 2011
Kvenfélagið Lindin leitar eftir umsóknum. - 07. desember 2011
Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall. - 05. desember 2011
Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda.
RSS
Fór niður Niagara fossa og lifði það af
Fleiri blogg
- 22.05.2012
Barcelona vill fá Zabaleta - 22.05.2012
Veðurlýsing - 21.05.2012
Alex Leví 3 ára. - 21.05.2012
Húnabjörgin sækir vélarvana bát - 20.05.2012
Myndir 8.maí
