Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Nýi vegurinn um Vesturárdal opinn fyrir allri umferð.

Vesturdalur
Vesturdalur
Ingi Eðvaldsson verkstjóri vegagerðarinnar á Vopnafirði sagði mér í dag að nýi vegurinn um Vesturárdal væri nú opinn fyrir allri umferð, búið væri að setja stikur en það á eftir að sópa lausa malarlaginu af síðustu 9 km fyrir ofan Hauksstaði og þar er hraðatakmörkun 50 km. Þetta er að sjálfsögðu bylting í vegamálum hér á Vopnafirði , að geta loks farið á bundnu slitlagi til Reykjavíkur frá Vopnafirði ef menn velja það. Síðasti kaflinn verður sópaður eftir helgi en sjálf verklokin verða næsta sumar en það á eftir að laga vegaxlir og annan frágang. Til hamingju Vopnfirðingar.

Athugasemdir

#1

Berglind Árna, fimmtudagur 15 september kl: 19:31

Til hamingju, frábært! Hlakka til að bruna heim i fjörðinn minn um jólin :)
ps. vantar svona thumbs up takka hér á fréttirnar ;)

#2

Gísli Árnason, föstudagur 16 september kl: 13:57

Þette er flottur vegur kanski best að fara rúnt í Vopnafjörð á morgunn

Skrifaðu athugasemd:


RSS

18.05.2012 | Ari Hallgríms

Veðurlýsing

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE ...
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón