Mikil aukning í vinnslu til manneldis - Góður árangur.
Það sem af er síldar- og makrílvertíðinni hafa verið fryst samtals rúmlega 10.000 tonn af afurðum í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði en það er um 3.000 tonnum meira en á sama tíma í fyrra. Þessi mikla aukning er þeim mun merkilegri fyrir þær sakir að aflamagnið er töluvert minna í sumar en í fyrrasumar en aflasamdrátturinn skýrist aðallega af því að Faxi RE komst ekki til veiða fyrr en í byrjun þessa mánaðar vegna breytinga en Ingunn AK og Lundey NS hafa verið að veiðum frá því í byrjun júní.
Samkvæmt upplýsingum Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda, er kvótastaðan góð. Búið er að veiða um 8.000 tonn af síld og um 9.000 tonn af makríl en aflamark HB Granda í umræddum tegunum er 20.800 tonn af norsk-íslenskri síld og 15.500 tonn af makríl. Alls eiga skip HB Granda því óveidd um 19.000 tonn af alls um 36.300 tonna heildarkvóta.
Góður gangur hefur verið í makrílveiðum og -vinnslu að undanförnu en aðaláherslan hefur verið lögð á makrílinn. Uppistaða aflans hefur verið makríll og hefur hann allur nýst til vinnslu. Makríllinn er aðallega hausaður og slógdreginn í vinnslunni á Vopnafirði fyrir frystingu en stærsti makríllinn hefur einnig verið heilfrystur í nýjum blástursfrysti sem fjárfest var í fyrir vertíðina. Samfelld vinnsla hefur verið í uppsjávarfrystihúsinu á Vopnafirði eftir að Faxi fór til veiða og eina vinnslustoppið er hlé sem gert var vegna þrifa á vinnslubúnaði.
Að sögn Magnúsar Róbertssonar, vinnslustjóra HB Granda á Vopnafirði, hefur allt gengið eins og í sögu í vinnslunni og ef aflabrögð haldast áfram góð eru allar horfur á því að vertíðin standi fram í októbermánuð. Vinnslugetan er um 250 tonn af afurðum á sólarhring þegar verið er að vinna makríl en líkt og áður hefur komið fram hér á heimasíðunni þá munar verulega um tilkomu nýja blásturfrystisins og þá aðallega varðandi frystingu á stærsta makrílnum.
Af skipunum er það annars helst að frétta að þau hafa verið að veiðum um 120 til 150 sjómílur frá Vopnafirði. Faxi er t.a.m. að veiðum á Þórsbanka í dag, löndun lauk úr Lundey í kvöld og vinnsla úr Ingunni tekur við. Síðan er á Faxa til að taka við af Ingunni annað kvöld. Skipin, sem verið hafa að síldveiðum, eru mun norðar og m.a. eru síldveiðarnar stundaðar út af Vopnafirði um þessar mundir.
Þetta kemur fram á vef Hb Granda
Skrifaðu athugasemd:
Fleiri fréttir
- 31. mars 2012
Árshátíð Vopnafjarðarskóla 2012 - 26. mars 2012
Hollráð Hugos Þriðjudaginn 27. mars, kl. 20:00 í Vopnafjarðarskóla - 12. mars 2012
Fjölmenn æskulýðsmessa gleðinnar - 09. mars 2012
Vopnfirskir unglingar láta til sín taka - 07. mars 2012
Ekki nóg að kanna lífeyrisréttindin korteri fyrir töku lífeyris - fundur í kvöld á Vopnafirði - 21. febrúar 2012
Þar sem himininn frýs við jörð - 21. febrúar 2012
Tveir fluttir á sjúkrahús. - 11. febrúar 2012
Einn einn tveir dagurinn, 112: Ekki hika – hringdu til öryggis - 24. janúar 2012
Blakgellur svífa - 05. janúar 2012
Lífið er Milljón. - 05. janúar 2012
Fyrsta loðnan komin í land á Vopnafirði. - 24. desember 2011
Varað við stormi. - 08. desember 2011
Kvenfélagið Lindin leitar eftir umsóknum. - 07. desember 2011
Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall. - 05. desember 2011
Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda.
RSS
Pappírstunna við öll heimili
Fleiri blogg
- 17.05.2012
Gerrard: Kenny verður alltaf mitt átrúnaðargoð - 17.05.2012
Dagur aldraðra. - 15.05.2012
Aðalsafnaðarfundur Vopnafjarðarsóknar - 15.05.2012
Bryggjurúntur 2. - 15.05.2012
Elísabet Oktavía hættir.
