Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Fyrsta loðnan sem berst til Vopnafjarðar á þessu ári.

Nú er verið að landa fyrstu loðnunni á þessari vertíð á Vopnafirði. Faxi er að landa fullfermi af góðri loðnu en Lundey er að landa um 1.300 tonnum á Akranesi og Ingunn er á miðunum. Með því sem verið er að landa núna eru komin um 6.500 tonn en HB Grandi hefur 20.500 tonna kvóta.

Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarfisks HB Granda, hafa verið unnin hrogn úr öllum förmum og hefur nýtingin verið góð. Veiðin hefur verið í Faxaflóa og fékk Lundey síðasta aflann um 7 sml. suður af Malarifi. Það hefur verið fremur erfitt að eiga við veiðina en töluverður vindur hefur verið í flóanum og loðnan hefur haldið sig á of miklu dýpi.

Skrifaðu athugasemd:


RSS

18.05.2012 | Fréttablaðið Vísir

Folaldið var nefnt álfunum til heiðurs

„Við nefndum folaldið Álf sem smá virðingarvott við þessa nýju fjölskyldu sem sest er að hérna í Eyjum“, segir Gunnar ...
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón