Fundu gíðalegt magn af loðnu.
Áhöfnin á Lundey NS sigldi undir morguninn fram á gríðarstóra loðnutorfu suður af Ingólfshöfða. Torfan var 14 mílna löng, um 600 til 1000 metra breið og þykkt hennar var um 10 til 30 faðmar. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson RE var aðeins vestar og náði sömuleiðis að mæla loðnutorfuna. ,,Við vorum að koma frá Vopnafirði þar sem við lönduðum gulldepluafla í gær. Við sigldum um þetta svæði sl. föstudag og urðum þá ekki varir við nema smátorfur á víð og dreif. En svona gerist þetta, stór loðnutorfa gengur upp á grunnið og síðan sigtast inn nýjar göngur á öll grunnum og ef menn halda ekki vöku sinni þá gæti loðnuvertíðin hæglega farið fram hjá þeim. Það munaði ekki nema hársbreidd að það gerðist í fyrra. Þá voru menn að deila um það við fiskifræðingana hve mikið væri af loðnu í hverjum mældum rúmmetra og niðurstaðan varð sú að ákveðið var að taka tilraunaköst til þess að ganga úr skugga um það. Þá fannst loðnugangan í Reynisdýpinu," sagði Lárus Grímsson, skipstjóri á Lundey NS er við náðum tali af honum í morgun en hann segist vera hissa á því að ekki skuli hafa verið gefinn út loðnukvóti um leið og vart varð við þessa gríðarstóru loðnutorfu suður af Ingólfshöfðanum.
,,Ég hélt að flotinn yrði ræstur út um leið. Í venjulegu árferði þá þættu þetta góðar horfur. Torfan var 25 til 30 faðma þykk þar sem hún var þykkust en víðast var hún um 12 til 15 faðmar á þykkt. Það væri vandalaust að ná 400 til 500 tonna köstum í nót alls staðar á þessum 14 mílum. Og það er loðna víðar fyrir austan. Vandinn er sá að það koma ekki 500 til 600 þúsund tonn af loðnu í einni gusu til að láta mæla sig. Það kemur góð torfa eins og þessi við Ingólfshöfðann og síðan sigtast inn í gönguna á öllum grunnum vestur með landinu. Eftir því sem vestar dregur er meira af loðnu í hverjum rúmmetra sem mælist. Þetta vita menn og það þarf að taka tillit til þess. Ef menn gera það ekki þá gæti loðnan verið komin vestur fyrir Eyjar áður fullnægjandi mæling næst og þá hafa menn ekki langan tíma til stefnu," sagði Lárus Grímsson.

Skrifaðu athugasemd:
Fleiri fréttir
- 31. mars 2012
Árshátíð Vopnafjarðarskóla 2012 - 26. mars 2012
Hollráð Hugos Þriðjudaginn 27. mars, kl. 20:00 í Vopnafjarðarskóla - 12. mars 2012
Fjölmenn æskulýðsmessa gleðinnar - 09. mars 2012
Vopnfirskir unglingar láta til sín taka - 07. mars 2012
Ekki nóg að kanna lífeyrisréttindin korteri fyrir töku lífeyris - fundur í kvöld á Vopnafirði - 21. febrúar 2012
Þar sem himininn frýs við jörð - 21. febrúar 2012
Tveir fluttir á sjúkrahús. - 11. febrúar 2012
Einn einn tveir dagurinn, 112: Ekki hika – hringdu til öryggis - 24. janúar 2012
Blakgellur svífa - 05. janúar 2012
Lífið er Milljón. - 05. janúar 2012
Fyrsta loðnan komin í land á Vopnafirði. - 24. desember 2011
Varað við stormi. - 08. desember 2011
Kvenfélagið Lindin leitar eftir umsóknum. - 07. desember 2011
Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall. - 05. desember 2011
Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda.
RSS
18.05.2012 | Fréttablaðið Vísir
Folaldið var nefnt álfunum til heiðurs
„Við nefndum folaldið Álf sem smá virðingarvott við þessa nýju fjölskyldu sem sest er að hérna í Eyjum“, segir Gunnar ...
Fleiri blogg
- 17.05.2012
Gerrard: Kenny verður alltaf mitt átrúnaðargoð - 17.05.2012
Dagur aldraðra. - 15.05.2012
Aðalsafnaðarfundur Vopnafjarðarsóknar - 15.05.2012
Bryggjurúntur 2. - 15.05.2012
Elísabet Oktavía hættir.