Forseti Íslands í heimsókn hjá HB Granda
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, kom í morgun
í heimsókn í fiskiðjuver HB Granda á Norðurgarði og átti þar góðan fund
með starfsfólki félagsins. Fundurinn var sá fyrsti í röð
vettvangsheimsókna sem forsetinn hyggst fara í á næstunni en yfirskrift
þessara heimsókna er ,,Treystum undirstöðurnar – stöndum saman.“
Í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu segir að Forseti Íslands muni á næstu dögum heimsækja vinnustaði, skóla, samfélagsstofnanir, byggðarlög og hjálparmiðstöðvar. Í heimsóknunum verði lögð áhersla á samræður um hvernig Íslendingar geti þrátt fyrir hina miklu erfiðleika sem nú blasa við treyst undirstöður efnahagslífs og samfélags, sótt fram til nýrra og betri tíma, nýtt margvíslegar auðlindir landsins og fjölþættan mannauð sem þjóðin býr yfir. Mikilvægt sé að efla samstöðu og gagnkvæman stuðning landsmanna allra, bjartsýni og sóknarhug.
Fundurinn í matsal HB Granda á Norðurgarði var fjölsóttur. Um 120 manns hlýddu á mál Hr. Ólafs Ragnars Grímssonar sem ávarpaði starfsfólkið á íslensku og ensku en þess má geta að hjá félaginu vinnur fólk af alls um 20 þjóðernum. Forsetinn kom víða við. Hann vék sérstaklega að mikilvægi sjávarútvegsins sem undirstöðuatvinnugreinar og uppsprettu þess að fá erlendan gjaldeyri inn í landið. Hr. Ólafur Ragnar notaði sömuleiðis tækifærið til að koma á framfæri þakklæti til starfsfólksins fyrir þeirra störf en margir af starfsmönnum HB Granda eiga að baki áratuga starfsreynslu á sviði fiskveiða og fiskvinnslu. Forsetinn gat þess og að hann hefði á sínum tíma, sem ungur maður, unnið hjá Ísbirninum á Seltjarnarnesi við að hengja upp fisk í skreið en sem kunnugt er þá varð Grandi hf. til við sameiningu Ísbjarnarins og Bæjarútgerðar Reykjavíkur á sínum tíma.
Eftir að hafa ávarpað starfsmenn, gekk forsetinn á milli manna og ræddi við starfsfólk. Þá átti hann fund með stjórnendum fyrirtækisins þar sem farið var yfir stöðu efnahagsmálanna og þann vanda sem sækir að íslenskri þjóð í dag. Að sögn Eggerts Benedikts Guðmundssonar, forstjóra HB Granda, var heimsókn forsetans ákaflega gagnleg og hann segist meta mikils þann heiður sem Forseti Íslands sýndi fyrirtækinu og starfsfólkinu með henni.

Skrifaðu athugasemd:
Fleiri fréttir
- 31. mars 2012
Árshátíð Vopnafjarðarskóla 2012 - 26. mars 2012
Hollráð Hugos Þriðjudaginn 27. mars, kl. 20:00 í Vopnafjarðarskóla - 12. mars 2012
Fjölmenn æskulýðsmessa gleðinnar - 09. mars 2012
Vopnfirskir unglingar láta til sín taka - 07. mars 2012
Ekki nóg að kanna lífeyrisréttindin korteri fyrir töku lífeyris - fundur í kvöld á Vopnafirði - 21. febrúar 2012
Þar sem himininn frýs við jörð - 21. febrúar 2012
Tveir fluttir á sjúkrahús. - 11. febrúar 2012
Einn einn tveir dagurinn, 112: Ekki hika – hringdu til öryggis - 24. janúar 2012
Blakgellur svífa - 05. janúar 2012
Lífið er Milljón. - 05. janúar 2012
Fyrsta loðnan komin í land á Vopnafirði. - 24. desember 2011
Varað við stormi. - 08. desember 2011
Kvenfélagið Lindin leitar eftir umsóknum. - 07. desember 2011
Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall. - 05. desember 2011
Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda.
RSS
18.05.2012 | Fréttablaðið Vísir
Folaldið var nefnt álfunum til heiðurs
„Við nefndum folaldið Álf sem smá virðingarvott við þessa nýju fjölskyldu sem sest er að hérna í Eyjum“, segir Gunnar ...
Fleiri blogg
- 17.05.2012
Gerrard: Kenny verður alltaf mitt átrúnaðargoð - 17.05.2012
Dagur aldraðra. - 15.05.2012
Aðalsafnaðarfundur Vopnafjarðarsóknar - 15.05.2012
Bryggjurúntur 2. - 15.05.2012
Elísabet Oktavía hættir.