Farið yfir Haug á gönguskíðum.
Á Föstudaginn langa fóru nokkrir göngugarpar frá
Grímsstöðum á Fjöllum á gönguskíðum yfir Haug til Vopnafjarðar. Gengið
var meðfram gömlu símalínunni sem liggur á milli Grímsstaða og
Hauksstaða og gist eina nótt í Austara símahúsi á Urðum.Fyrri dagleiðin sem liggur yfir Haugsöræfi er um 32 km. Byrjaði ferðin vel í góðu veðri en um kvöldmatarleitið versnaði veðrið til muna og skyggnið var afar takmarkað. Þá var göngufólk statt við Vestara símahús en eftir um klukkustundar göngu á fjallgarðinum lagaðist veðrið og létti til með flottu fullu tungli.
Tunglið vísaði leiðina í Austarahús og þar var komið um kl. 22 í misheitan kofann en á borðum var hangiket ættað frá Hauksstöðum með kartöflum og uppstúf sem yljaði göngugörpum.
Eftir góðan nætursvefn var haldið af stað til Hauksstaða í norðan garra en sólin glennti sig öðru hvoru en hafði lítil áhrif. Endaði ferðin svo í rjúkandi kaffi og kökum hjá sómafólkinu á Hauksstöðum.
Skrifaðu athugasemd:
Fleiri fréttir
- 31. mars 2012
Árshátíð Vopnafjarðarskóla 2012 - 26. mars 2012
Hollráð Hugos Þriðjudaginn 27. mars, kl. 20:00 í Vopnafjarðarskóla - 12. mars 2012
Fjölmenn æskulýðsmessa gleðinnar - 09. mars 2012
Vopnfirskir unglingar láta til sín taka - 07. mars 2012
Ekki nóg að kanna lífeyrisréttindin korteri fyrir töku lífeyris - fundur í kvöld á Vopnafirði - 21. febrúar 2012
Þar sem himininn frýs við jörð - 21. febrúar 2012
Tveir fluttir á sjúkrahús. - 11. febrúar 2012
Einn einn tveir dagurinn, 112: Ekki hika – hringdu til öryggis - 24. janúar 2012
Blakgellur svífa - 05. janúar 2012
Lífið er Milljón. - 05. janúar 2012
Fyrsta loðnan komin í land á Vopnafirði. - 24. desember 2011
Varað við stormi. - 08. desember 2011
Kvenfélagið Lindin leitar eftir umsóknum. - 07. desember 2011
Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall. - 05. desember 2011
Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda.
RSS
18.05.2012 | Fréttablaðið Vísir
Folaldið var nefnt álfunum til heiðurs
„Við nefndum folaldið Álf sem smá virðingarvott við þessa nýju fjölskyldu sem sest er að hérna í Eyjum“, segir Gunnar ...
Fleiri blogg
- 17.05.2012
Gerrard: Kenny verður alltaf mitt átrúnaðargoð - 17.05.2012
Dagur aldraðra. - 15.05.2012
Aðalsafnaðarfundur Vopnafjarðarsóknar - 15.05.2012
Bryggjurúntur 2. - 15.05.2012
Elísabet Oktavía hættir.
