Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Einherji vann Dalvík

Einherji fékk Dalvíkinga í heimsókn á Frímerkið og mættu Svarfdælar með grimmt stuðningslið sem lamdi trommur allan tímann með tilheyrandi hávaða.

 Annars var leikurinn býsna jafn og komust Einherja menn yfir með sjálfsmarki Dalvíkinga í fyrrihálfleik sem var jafnað skömmu síðar. Snemma í seinni hálfleik komust gestirnir yfir en þegar skammt var til leiksloka skoraði Davíð beint úr aukaspyrnu og loks skoraði Matti annan leikinn í röð.

Daníel Magnússon fékk þungt höfuðhögg eftir að hafa lent í samstuði við samherja og missti meðvitund í stutta stund og var fluttur með sjúkrabíl á heilsugæslustöðina til frekari skoðunar dálítið ringlaður en nú allur að koma til og verður vonandi klár í næsta leik. Við unnum leikinn 3-2 og er þetta fjórði sigurleikurinn í röð og ekki hægt annað en að hrósa strákunum fyrir frábæran baráttuanda og sigurvilja.

Skrifaðu athugasemd:


RSS

18.05.2012 | Fréttablaðið Vísir

Atvinnurekstri skipt út fyrir atvinnulíf

Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) skipti um nafn á aðalfundi í vikunni og heitir nú Félag kvenna í atvinnulífinu. Á sama fundi v...
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón