Búið að stofna skokkhóp, dúnduráhugi á Vopnafirði.
Í gær var stofnaður skokkhópurinn Drekinn á Vopnafirði en það var Pétur Frantzson fyrrum kyrrsetu- og stórreykingamaður sem kom og gaf ráðgjöf en hann snéri blaðinu við fyrir um 16 árum og fór að hreyfa sig.Í viðtali við Morgunblaðið segist Pétur lengi hafa furðað sig á því hvað hlaupið er á fáum stöðum á landinu utan höfuðborgarsvæðisins en á þeim stöðum sem hlaupahópar eru til staðar, líkt og á Selfossi og Ísafirði, ríkir mikill áhugi. Hann tók því saman við Adidas og er nú á ferð um byggðir landsins í því skyni að vekja áhuga fólks á hlaupi og stofna hlaupahópa. Þegar blaðamaður náði sambandi við Pétur í gær var hann staddur á Vopnafirði en í dag verður hann í Neskaupstað og á morgun á Reyðarfirði og Egilsstöðum.
„Hérna á Vopnafirði er langmesti áhuginn, alveg dúnduráhugi," segir Pétur. „Þau eru búin að setja sér markmið og fylla út skýrslur þannig að þau verða að standa við það og þetta er bara mjög gaman." Sem dæmi um markmið má nefna hópinn á Vopnafirði. Samkvæmt áætlun sem Pétur lagði fyrir hlauparana eiga allir að geta hlaupið frá bænum og að sundlauginni eftir átta vikur en fjarlægðin er 12 km. Það verður gert eitt föstudagskvöldið og verður grillað hjá sundlauginni.
Spurður hvort slíkt sé raunhæft fyrir óvanan hlaupara segir Pétur það vel hægt sé planinu fylgt. Þolið byggist hratt upp með reglulegum æfingum.
Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:30 og laugardögum kl 09:30. Lagt er af stað frá íþróttahúsinu.
Leiðbeinandi hópsins er Bjarney Guðrún Jónsdóttir ( bjarney@vopnaskoli.is)
Skrifaðu athugasemd:
Fleiri fréttir
- 31. mars 2012
Árshátíð Vopnafjarðarskóla 2012 - 26. mars 2012
Hollráð Hugos Þriðjudaginn 27. mars, kl. 20:00 í Vopnafjarðarskóla - 12. mars 2012
Fjölmenn æskulýðsmessa gleðinnar - 09. mars 2012
Vopnfirskir unglingar láta til sín taka - 07. mars 2012
Ekki nóg að kanna lífeyrisréttindin korteri fyrir töku lífeyris - fundur í kvöld á Vopnafirði - 21. febrúar 2012
Þar sem himininn frýs við jörð - 21. febrúar 2012
Tveir fluttir á sjúkrahús. - 11. febrúar 2012
Einn einn tveir dagurinn, 112: Ekki hika – hringdu til öryggis - 24. janúar 2012
Blakgellur svífa - 05. janúar 2012
Lífið er Milljón. - 05. janúar 2012
Fyrsta loðnan komin í land á Vopnafirði. - 24. desember 2011
Varað við stormi. - 08. desember 2011
Kvenfélagið Lindin leitar eftir umsóknum. - 07. desember 2011
Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall. - 05. desember 2011
Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda.
RSS
18.05.2012 | Fréttablaðið Vísir
Atvinnurekstri skipt út fyrir atvinnulíf
Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) skipti um nafn á aðalfundi í vikunni og heitir nú Félag kvenna í atvinnulífinu. Á sama fundi v...
Fleiri blogg
- 17.05.2012
Gerrard: Kenny verður alltaf mitt átrúnaðargoð - 17.05.2012
Dagur aldraðra. - 15.05.2012
Aðalsafnaðarfundur Vopnafjarðarsóknar - 15.05.2012
Bryggjurúntur 2. - 15.05.2012
Elísabet Oktavía hættir.
