Axel biður um aðstoð vegna leka.
Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar var skipinu meinað um leyfi til að sigla til Akureyrar í gær með tilvísun í íhlutunarreglu um verndun hafs og strandsvæða. Skipinu var því siglt frá Hornafirði til Fáskrúðsfjarðar þar sem kafarar Landhelgisgæslunnar og matsmenn eiganda og flokkunarfélags skipsins skoðuðu það.
Við þá skoðun komu í ljós göt á skrokk þess sem þó voru aðeins inn í lokuð rými í skipinu, þannig að ekki var talin hætta á að leki kæmist að lestum. Að lokinni skoðun og samráði sérfræðinga var því veitt heimild fyrir því að skipið héldi áleiðis til Akureyrar þar sem til stendur að það fari í slipp. Segir varðstjóri Landhelgisgæslunnar að engin ástæða hafi verið talin til að efast um þetta mat þar sem reyndir og virtir aðilar hafi staðið á bak við það.
Um klukkan 23 í gærkvöldi, þegar skipið var statt út af Norðfjarðarflóa urðu skipverjar hins vegar varir við leka í lestum skipsins. Björgunarskipið Hafbjörg var þá sent á staðinn með dælur. Einnig voru gerðar ráðstafanir til að leggja út mengunargirðingar og að taka skipið til hafnar á Neskaupstað. Dælurnar höfðu þó vel undan að dæla sjó úr lestunum og reyndist hann ekki vera olíumengaður og því var ákveðið um miðnætti að halda ferð skipsins áfram til Akureyrar.
Rétt fyrir klukkan sjö í morgun fór skipstjóri Axels síðan fram á að fá öflugar dælur um borð í skipið þar sem lensidælur þess hefðu stíflast. Björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson fór á staðinn með dælur frá slökkviliðinu á Vopnafirði og gerðar voru ráðstafanir til að fá viðbótar dælur. Þá voru hafnaryfirvöld á Vopnafirði sett í viðbragðsstöðu vegna hugsanlegrar komu skipsins þangað.
Vel gekk að dæla sjó úr skipinu í morgun og var því enn á ný ákveðið að sigla því áfram áleiðis til Akureyrar. Þeirri ákvörðun hefur nú verið breytt sínar fyrir tilstuðlan Landhelgisgæslunnar sem hefur gert skipstjóra skipsins að bíða komu varðskipsins áður en ferð þess verður haldið áfram.
Skrifaðu athugasemd:
Fleiri fréttir
- 31. mars 2012
Árshátíð Vopnafjarðarskóla 2012 - 26. mars 2012
Hollráð Hugos Þriðjudaginn 27. mars, kl. 20:00 í Vopnafjarðarskóla - 12. mars 2012
Fjölmenn æskulýðsmessa gleðinnar - 09. mars 2012
Vopnfirskir unglingar láta til sín taka - 07. mars 2012
Ekki nóg að kanna lífeyrisréttindin korteri fyrir töku lífeyris - fundur í kvöld á Vopnafirði - 21. febrúar 2012
Þar sem himininn frýs við jörð - 21. febrúar 2012
Tveir fluttir á sjúkrahús. - 11. febrúar 2012
Einn einn tveir dagurinn, 112: Ekki hika – hringdu til öryggis - 24. janúar 2012
Blakgellur svífa - 05. janúar 2012
Lífið er Milljón. - 05. janúar 2012
Fyrsta loðnan komin í land á Vopnafirði. - 24. desember 2011
Varað við stormi. - 08. desember 2011
Kvenfélagið Lindin leitar eftir umsóknum. - 07. desember 2011
Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall. - 05. desember 2011
Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda.
RSS
Atvinnurekstri skipt út fyrir atvinnulíf
Fleiri blogg
- 17.05.2012
Gerrard: Kenny verður alltaf mitt átrúnaðargoð - 17.05.2012
Dagur aldraðra. - 15.05.2012
Aðalsafnaðarfundur Vopnafjarðarsóknar - 15.05.2012
Bryggjurúntur 2. - 15.05.2012
Elísabet Oktavía hættir.
