Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Ærin 829 ber fimm lömbum.

Ærin með lömbin fimm.
Ærin með lömbin fimm.
Það er ekki á hverjum degi sem ær ber 5 lömbum en það gerðist á Refstað á dögunum. Ærin 829 bar fyrst tveggja vetra 3 lömbum og árið eftir bar hún fjórum og núna fimm. Öll lömbin hennar hafa lifað fram á haust og hefur fallþunginn verði yfir 18 kg.

Eins og fyrr sagði þá gerist þetta ekki á hverjum degi, síðast gerðist þetta á Refstað fyrir 52 árum eða 1960. Lömbunum fimm og ánni heilsast vel og trúlega fagna þau hitanum sem kominn er á Vopnafirði en hann fór í um 20 stig í dag.

Skrifaðu athugasemd:


RSS

24.05.2013 | það sem er gerast hjá Landsbjörg

Landsþing 2013

Skráning á landsþing, árshátíð og björgunarleika fer fram áinnra svæði.Hér má nálgastdagskrá þingsins.
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón