13 tilboð bárust í nýjann veg.
Þrettán tilboð bárust í lagningu nýs Norðausturvegar milli Bunguflóa og Vopnafjarðar og hluta Hofsárdalsvegar og voru tilboðsfjárhæðir allt frá rúmum 2,7 milljöðrum í 738 milljónir króna. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði uppá 1.440 milljónir króna.
Lægsta tilboð átti verktakinn Hektar ehf. í Kópavogi, kr. 738.179.500, sem er 51,3% af kostnaðaráætlun, en það hæsta var frá Magna ehf. í Kópavogi kr. 2.763.243.000, sem er 191,9% af kostnaðaráætlun. Aðeins tvö tilboð voru yfir áætluðum verktakakostnaði. Verkið var einnig auglýst á evrópska efnahagssvæðinu, að því er segir á vef samgönguráðuneytisins.
Verkefnið snýst um lagningu nýs vegar milli Bunguflóa og Vopnafjarðar og hluta Hofsárdalsvegar. Norðausturvegur verður um 30,4 km langur og Hofsárdalsvegur (920), liggur milli nýja Norðausturvegarins í Vesturárdal og Árhvamms í Hofsárdal og verður 6,8 km langur. Endurbæta þarf 0,85 km af Skógavegi (914) og verða nýjar tengingar um 1,6 km að lengd.
Lagningu slitlags á Norðausturveg skal lokið fyrir 15. ágúst 2011 og verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. nóvember 2012.
Unnið er nú við fyrri áfanga verksins, nýjan veg milli Hringvegar og Bunguflóa, en samið var við Suðurverk um þann verkhluta.

Skrifaðu athugasemd:
Fleiri fréttir
- 31. mars 2012
Árshátíð Vopnafjarðarskóla 2012 - 26. mars 2012
Hollráð Hugos Þriðjudaginn 27. mars, kl. 20:00 í Vopnafjarðarskóla - 12. mars 2012
Fjölmenn æskulýðsmessa gleðinnar - 09. mars 2012
Vopnfirskir unglingar láta til sín taka - 07. mars 2012
Ekki nóg að kanna lífeyrisréttindin korteri fyrir töku lífeyris - fundur í kvöld á Vopnafirði - 21. febrúar 2012
Þar sem himininn frýs við jörð - 21. febrúar 2012
Tveir fluttir á sjúkrahús. - 11. febrúar 2012
Einn einn tveir dagurinn, 112: Ekki hika – hringdu til öryggis - 24. janúar 2012
Blakgellur svífa - 05. janúar 2012
Lífið er Milljón. - 05. janúar 2012
Fyrsta loðnan komin í land á Vopnafirði. - 24. desember 2011
Varað við stormi. - 08. desember 2011
Kvenfélagið Lindin leitar eftir umsóknum. - 07. desember 2011
Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall. - 05. desember 2011
Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda.
RSS
18.05.2012 | Fréttablaðið Vísir
Atvinnurekstri skipt út fyrir atvinnulíf
Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) skipti um nafn á aðalfundi í vikunni og heitir nú Félag kvenna í atvinnulífinu. Á sama fundi v...
Fleiri blogg
- 17.05.2012
Gerrard: Kenny verður alltaf mitt átrúnaðargoð - 17.05.2012
Dagur aldraðra. - 15.05.2012
Aðalsafnaðarfundur Vopnafjarðarsóknar - 15.05.2012
Bryggjurúntur 2. - 15.05.2012
Elísabet Oktavía hættir.