Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Það stendur í stjörnunum

Hátíð er frammundan:   Dagar myrkurs á Austurlandi

Viðburður í Minjasafninu á Bustarfelli


"Það stendur í stjörnunum"

Laugardaginn 12. nóvember kl. 17:00 og kl. 20:00

Fyrri dagskrá endar með veitingum en sú seinni hefst á góðgætinu

Og þín og þinna er svo sannarlega vænst, reyndar beðið með óþreyju, því það verður gaman og mikið fjör.

 

  • Tónleikar í ?Sparðinu? hvar Baldvin Eyjólfs og Vopnfirskir söngvarar stytta okkur stundir.
  • Tónlist og rökkursögur í baðstofunni
  • Verkefnasýning frá leik- og grunnskóla
  • Stjörnukort dagsins
  • Spáð í spilin og bolla, ath að allt er til gamans gert
  • Súpa, brauð, kaffi,kakó,djús og meðlæti

 

Það sem meira er að allt þetta kostar einvörðungu 1300 kr. fyrir 13 ára og eldri.  Frítt fyrir yngri en 13 ára.

Menningarmálanefnd Vopnafjarðar og Minjasafnið

Hjálp óskast

Stundum leiðir ljósmyndunin og þörfin fyrir að skapa, mann út í óvissuna. Maður er alltaf að finna nýjar hugmyndir til að vinna að og eru 2 nokkuð stórar hugmyndir núna á teikniborðinu. Önnur fer fram núna í endaðan júní og heldur áfram í júlí og jafnvel byrjun ágúst. Sú seinni fer af stað í haust, september/október. Þetta verður eflaust skemmtileg vinna og lærdómsrík og langar mig að finna ungt fólk sem væri til í að aðstoða mig og fá reynsluna að launum ásamt aðgangi að græjunum mínum og hvernig er að vinna á setti. Get því miður ekki greitt nein laun í formi peninga en eins og ég sagði áður að þá getur smá reynsla verið dýrmæt :) Þetta er alls ekki erfið vinna, né mikil, heldur fyrst og fremst skemmtileg og fræðandi um hvað þetta snýst allt saman.

Þegar ég var að fikra mig áfram var ég svo heppinn að fá að aðstoða Spessa þegar hann var að gera kvenhetju seríuna sína og fannst mér það rosa fín upplifun og góð reynsla og núna bara fyrir stuttu síðan aðstoðaði ég hann við myndatökur á BÍ/Bolungarvík dagatalinu bara til að ná mér í smá lærdóm og kom sér það vel fyrir mig og safnaði upplýsingum í reynslubankann. Með því að vera að leita að hjálp í þetta er ég þó ekki að setja mig á sama stall og meistari Spessi heldur langar mig að miðla því sem ég kann til yngra fólks og vonandi vekja hjá því áhuga á ljósmyndun hérna fyrir vestan.

Ef að þú ert strákur/stelpa sem hefur áhuga á þessu og býrð á Ísafirði, þá vinsamlegast hafðu samband og ræðum málin, væri gott að fá í pósti svona sirka hvað þið hafið verið að gera áður í ljósmyndun :)
Fyrri síða1
2
Næsta síða
Síða 2 af 2

RSS

18.05.2012 | Fréttablaðið Vísir

Atvinnurekstri skipt út fyrir atvinnulíf

Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) skipti um nafn á aðalfundi í vikunni og heitir nú Félag kvenna í atvinnulífinu. Á sama fundi v...
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón