Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Elísabet Oktavía hættir.

Hún Elísabet Oktavía er að hætta hjá okkur og er að fara í sumarfrí. Hún á afmæli í sumar og vildi halda upp á það hérna hjá okkur áður en hún fer og því bauð hún okkur á Ásbrún upp á ís. Til hamingju með 6 ára afmælið í sumar Elísabet og takk fyrir okkur. Við þökkum fyrir ánæilega samveru í vetur og gangi þér vel í skólanum í haust.

Lilja 3ára

Hún Lilja átti 3 ára afmæli 12. maí og bauð hún okkur upp á snakk og ís í tilefni dagsins í dag, takk fyrir okkur Lilja og til hamingju með daginn:)

Afmælisbarn dagsins

Hann Jóvin de Haan er 5 ára í dag og að því tilefni kom hann með ís og bauð okkur á Ásbrún. Til hamingjum með daginn Jóvin og takk fyrir okkur.

Hákon Bragi 3 ára

Hann Hákon Bragi átti 3 ára afmæli í gær, 13. maí og bauð hann okkur upp á snakk í tilefni dagsins. Takk fyrir okkur Hákon Bragi og til hamingju með afmælið þitt.

Svangi Mangi

Svangi Mangi heitir moltukarið okkar, börnin á Ásbrún voru með lýðræðislega kosningu um nafn á karinu okkar og varð Svangi Mangi fyrir valinu. Við setjum alla ávaxta og grænmetisafganga í Svanga Manga, erum dugleg að gefa honum að borða og hræra í honum:)

Sumarblíða

Sólin hefur heiðrað okkur með nærveru sinni og við höfum fagnað henni og verið mikið úti. Það er mjög vinsælt að fá vatn í fötu og pensil til að mála með :)

Námskeiðsdagur (starfsdagur)

Starfsfólk leikskólans verður á skyndihjálparnámskeiði 11. maí og leikskólinn því lokaður þann dag.

Afmælisbarn

Hann Matthías varð 6 ára á sumardagin fyrsta og að því tilefni kom hann með ís og gaf okkur á Ásbrún á föstudagin. Til hamingju með afmælið Matthías og takk fyrir okkur.

Gleðilegt sumar

Við skelltum okkur í sumargöngu síðasta vetrardag um bæinn og sungum nokkur lög. Við óskum öllum gleðilegs sumars og þökkum fyrir veturinn.

Enn fjölgar í Brekkubæ

Fjögur börn hafa nú bæst í leikskólahópinn. Jóhanna Laufey og Jódís Lilja eru byrjaðar á Hraunbrún og bræðurnir Kristján Breki og Hákon Bragi eru komnir á Ásbrún og Dagsbrún. Við bjóðum börn og foreldra velkoma í Brekkubæ :)

RSS

18.05.2012 | Fréttablaðið Vísir

Atvinnurekstri skipt út fyrir atvinnulíf

Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) skipti um nafn á aðalfundi í vikunni og heitir nú Félag kvenna í atvinnulífinu. Á sama fundi v...
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón