Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Bryggjurúntur 2.

Góðan og blessaðan daginn lesendur góðir. Ritstjórn Faxafrétta vill byrja á því að óska Ísfélaginu, Ólafi Einarssyni og áhöfn hans á Heimaey VE-1 til hamingju með glæsilegt skip.Það var svo ekinn þessi hefðbundni bryggjurúntur og smellt af nokkrum myndum sem koma hér að neðan.Kv.Faxagengið.Færeyski togarinn Vesturvón VA-200 að taka troll hjá Hampiðjunni við Skarfabakka.Þerney RE-101Álsey VE-2Þór og ÆgirKap VE-4 í HafnarfirðiStormur SH-177 frá Grundarfirði.

Hafnarfjörður.

Góðan og blessaðan daginn lesendur góðir. Það var farið í Hafnarfjörðinn að þessu sinni og smellt af nokkrum myndum sem koma hér að neðan.Kv.Faxagengið.Kap VE-4 nýmáluð.Skoðum þetta betur!!!Glussa og fiskislöngutromlurnar komnar á hærra plan.Það var verið að landa upp úrGullfara HF-290ÍsafoldEinar SigurjónssonStaðarberg GK-85Grunnvíkingur HF-163

Bryggjurúntur.

Góðan og blessaðan daginn lesendur góðir. Eitthvað hefur tæknin verið að stríða okkur á síðunni en hýsingaraðilinn er kominn í málið og vonandi kemst þetta fljótlega í samt lag.Kv.Faxagengið. Ísfélagsskipið Álsey VE-2 í slippnum í Reykjavík.Týr og Ægir.Helga RE-49, Steinunn SF-10 og Grænlenski togarinn Markus GR 6 373Nuuk.Steinunn SF-10Venus HF-519

Lundey NS-14í slipp.

Jæja lesendur góðir. Það er lítið að frétta af Faxanum en farinn var þessi venjulegi bryggju rúntur í dag og teknar nokkrar myndir en við sýnum nokkrar af kompanískipinu Lundey NS-14 sem hefur verið í slipp undafarna daga en reiknað er með því að Lundanum verði slakað niður um miðja viku.Kv.Faxagengið.Lundey NS-14

Sumarfrí.

Jæja þá er þessari kolmunnavertíð lokið hjá Faxamönnum en Faxinn fór í þrjár veiðiferðir þessa vertíð og heildaraflinn tæp 4600 tonn. Eftir löndun á Vopnafirði var skipinu siglt til Reykjavíkur og veiðafæri sett í land hjá Hampiðjunni við Skarfabakka síðan var skipinu siglt upp á Akranes og skipið bundið rækilega enda gert ráð fyrir því að skipið haldi ekki aftur til veiða fyrr en um mánaðarmótin júní/júlí. Stoppið verður notað til ýmisa lagfæringa og endurbóta ásamt því að skipið verður málað ofan dekks.Kv.Faxagengið.Hákon EA-148og Beitir NS-123 á kolmunnamiðunum suður af FæreyjumSúlaSíðasta halið á vertíðinni gaf 600 tonn.Svenni vélstjóri brosti blítt þegar dælt var yfir í Jón Kjartansson SU-111.Jón KjartanssonFaxinn að koma að bryggju á Vopnafirði.Sólin sýndi sig á Vopna.Gullmolinn hífður um borð.F83 HMS ST Albans við Skarfabakka.Veiðfærunum spólað í land við Skarfabakka.Það var líka blíða á Skaganum.Silver Copenhagen við bryggju á AkranesiMargrét Guðbrandsdóttir með Guðbjörgu Kristínu KÓ 6 í togi en hún hafði fengið net í skrúfuna.

Kolmunnaveiðum lokið.

Góðan og blessaðan daginn landsmenn allir jafnt til sjávar og sveita, já og til hamingju með daginn. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að að búið er að fylla á lestar skipsins og nota öll trixin í bókinni til að troða sem mestum afla í lestarnar. Það er ekki hægt að segja annað en að annað hvort er veiðin í ökkla eða eyra en síðustu þrjú hölin voru upp á 500 tonn, 25 tonn og svo var endað með 600 tonna hali. Það var nú ekki pláss fyrir allan þann afla í stálvömb Faxans þannig að Eskfirðingarnir á Jóni Kjartanssyni fengu síðustu 250 tonnin úr pokanum. Veiðisvæðið var á svipuðum slóðum og áður eða um 70 sjómílur suðaustur af Suðurey í Færeyjum, samt heldur norðar en áður en við kláruðum túrinn norðan við línu sem eingöngu eru leyfðar veiðar með fiskiskilju. Stímið til Vopnafjarðar er um 420 sjómílur og er áætlaður komutími að bryggju um klukkan eitt á morgun.Kv.Faxagengið.600 tonn í pokanum.

Rólegheit á kolmunnanum.

Góðan og margblessaðan daginn lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að hann er búinn að taka tvö höl og aflinn um 400 tonn. Þessa stundina er Faxinn að toga rúmlega 70 sjómilur suðaustur af Suðurey í færeyjum en eins og aflatölur segja til um þá er nú ekki sami krafturinn í veiðinni eins og var í síðasta túr en vonandi fer Eyjólfur að hressast. Það eru nú níu íslensk skip, tvö færeysk og Síldarvinnslu skipið grænlenska Erika, ásamt hópi af rússum.Kv.Faxagengið.Ólöf NS-69Grásleppukarlarnir báru sig frekar aumlega og sögðu að fiskeríið væri frekar slappt þessa dagana.Fiskanes NS-72Tóti NS-36Smábátahöfnin Vopnafirði.Ás NS-78Davíð NS-17Nýja starfsmannaaðstaða HB Granda á Vopnafirði.Heimavistarskólinn, TorfastöðumSnjóbíll björgunarsveitarinnar Vopna.

Haldið til hafs á ný.

Jæja, góðan dag góðir hálsar. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að hann lét úr höfn á Vopnafirðir um tvöleitið í dag eftir að landað hafði verið tæpum 1500 tonnum upp úr lestum skipsins. Stefnan er svo sett á einn túr á kolmunnamiðin suður af færeyjunum en það mun veraloka túrinn á þessari kolmunnavertíð.Kv.Faxagengið.Hér koma nokkrar myndir af Ingunni AK-150 teknar rétt fyrir miðnætti á mánudagskvöldinu.Ingunn með rúm tvö þúsund tonn af kolmunna í lestunum.Faxi og Ingunn að bíða eftir löndun.

Vopnafjörður.

Góðan og blessaðan daginn lesendur góðir. Það er nú frekar tíðindarlítið af Faxanum en hann kom til hafnar á Vopnafirði um tvöleitið aðfaranótt mánudagsins með rúm fimmtánhundruð tonn. Það var strax ljóst að Lundey NS-14 sem var væntanleg til hafnar með rúm fimmtánhundruð tonn yrði tekin á undan í löndun þar sem þeir áttu að vera mættir í slipp á fimmtudeginum. Þegar þeirri löndun lauk var allt þróarrými fullt á Vopnafirði og tók við löndunarbið en reiknað er með að byrjað verði að landa upp úr Faxanum um fjögurleitið aðfaranóttmiðvikudagsins. Ingunn AK-150 kom einnig til hafnar á mánudeginu með tvö þúsund smálestir en þeir lögðust að bryggju rétt fyrir miðnætti.Kv.FaxagengiðMjölskipið Havfrakt frá Runavík í færeyjum hélt úr höfn skömmu eftir að Faxinn hafði lagst að bryggju aðfaranótt mánudagsins.Olíuskipið LaugarnesFaxinn og LaugarnesiðLundarnir í löndun.

Kolmunnaveiðum lokið?????

Góðan og margblessaðan daginn lesendur góðir. Nýjustu fréttir af Faxanum eru þær að eftir síðustu færslu voru hífð rúm þrjúhundruð tonn og heildaraflinn eftir fyrstu tvö hölinn því rúm áttahundruð tonn. Þriðja halið í túrnum endaði með ósköpum því að belgurinn fór í druslur þegar pokinn kom upp og tapaðist pokinn með öllu sem honum tilheyrir, aflanemum og belgsjá.Eftir áranguslausa leit af pokanum var varatrollinu okkar"Haferninum" skellt undir og var trollið svo komið aftur í hafið á ellefta tímanum í gærkvöldi.Undir morgun var svo híft og aflinn tæp þrjúhundruð tonn. Það var svo híft aftur eftir hádegi í dag og aflinn úr því hali um fjögurhundruð og þrjátíu tonn sem dugði til að fylla á lestar Faxans og er áætlaður afli því um 1530 smálestir.Áætlaður komutími til Vopnafjarðar er um fjögurleitið aðfaranótt mánudagsins.Af kompanískipunum er það helst að frétta Lundey NS-14 er að dæla síðustu tonnunum sem vantaði um borð og Ingunn AK-150 er einnig langt komin með að fylla, sem sagt fínasta veiði sunnan við færeyjar og um fimm þúsund tonn af kolmunna á leið til Vopnafjarðar.Þá er þessari stuttu en snörpu kolmunnavertíð líklega að ljúka nema þá að saxað verði eitthvað á þau tonn sem eftir eru af heildarkvóta HB Granda þetta árið annars er bara tveggja mánaða frí framundan.Kv.Faxagengið.Hérna koma svo nokkrar myndir teknar í túrnum.Canon móment, pokinn að koma.

RSS

18.05.2012 | Fréttablaðið Vísir

Atvinnurekstri skipt út fyrir atvinnulíf

Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) skipti um nafn á aðalfundi í vikunni og heitir nú Félag kvenna í atvinnulífinu. Á sama fundi v...
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón