Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Aðalsafnaðarfundur Vopnafjarðarsóknar

Aðalsafnaðurfundur Vopnafjarðarsóknar verður þriðjudaginn 22. maí kl. 17:00 í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju. Venjuleg aðalfundarstörf og verum öll hjartanlega velkomin.

Kirkjuhátíð eldri borgara

Uppstigningardag, 17. maí, kl. 14:00 verður guðsþjónusta í tilefni af degi eldri borgara í Hofskirkju. Sameiginleg kirkjuhátíð eldri borgara á Vopnafirði, Bakkafirði, Þórshöfn og Þistilfirði verðu rí Hofskirkju á uppstigningardag. Hátíðin hefst með guðsþjónustu þar sem sóknarprestar Hofs- og Langanesprestakalls þjóna fyrir altari. Vopnafjarðardeild Rauða krossins býður upp á kaffiveitingar í Staðarholti eftir messu. Þá er öllum [...]

Óvissuferð unglingastarfsins

Fimmtudaginn 10. maí var farið í óvissuferð með unglingunum á Vopnafirði. Ferðin var í samstarfi með Björgunarsveitinni Vopna, félagsmiðstöðinni Drekanum og æskulýðsfélagi Hofsprestakalls. Ferðin hófst við safnaðarheimilið og var gengið fylgtu liði niðrá höfn. Þar beið björgunarsveitarbáturinn  okkar og var farið í siglingu um fjörðinn og fengu krakkarnir einnig að fara á gúmíbát sveitarinnar. Þegar í [...]

Óvissuferð 10-12 ára starfsins

Á þriðjudaginn var síðasta samveran í 10-12 ára starfinu og að því tilefni var farið í óvissuferð. Hér fyrir naðan er stutt ferðasaga og myndir frá ferðinni. Lagt var af stað frá safnaðarheimilinu og fyrsti áfangastaðurinn voru Svínabakkar. Þar tóku á móti okkur Þórdís og Jóhann og sýndu okkur fjósið. Mikla athygli vakti hjá krökkunum nýfæddur [...]

Af fjölskyldudegi á sumardaginn fyrsta

Sumardaginn fyrsta 19. apríl var haldinn fjölskyldudagur á Vopnafirði í samstarfi við félagasamtök og Vopnafjarðarhrepp. Dagurinn hófst í kirkjunni, þar sem boðið var upp á andlitsmálun og svo var fjölmenn samverustund í kirkjunni, þar sem 10-12 ára börnin léku stillimyndir, góðir gestir komu í heimsókn, í lok stundarinnar féllu blöðrur niður úr loftinu og öll [...]

Léttmessa og messukaffi fermingarbarna

Sunnudaginn 22. apríl verður guðsþjónusta í Vopnafjarðarkirkju kl. 14:00.Áhersla á létta söngva og sálma. Davíð Þór Jónsson, guðfræðingur og fræðslufulltrúi Austurlandsprófastsdæmis prédikar. Eftir guðsþjónustuna bjóða fermingarbörnin öllum í messukaffi. Í kaffinu verða sýndar ljósmyndir frá móti 10-12 ára barna á Eiðum um síðustu helgi. Komum og eigum góða stund í kirkjunni og þiggjum góðgjörðir hjá fermingarbörnunum. Verum [...]

Fjölskyldudagur á Vopnafirði

Sumardaginn fyrsta, 19. apríl, verður fjölskyldudagur á Vopnafirði og er hann nú haldin í annað skiptið af félagssamtökum á Vopnafirði og Vopnafjarðarhrepp. Dagskráin hefst í kirkjunni kl. 12:30 með andlitsmálun  og samverustund. Öll börn fá glaðning  og blöðru frá kirkjunni. Æskulýðsfélagið skreytir kirkjuna og undirbýr dagskrá og 10-12 ára börn verða með leikatriði. Þá verður skrúðganga [...]

Aðalsafnaðarfundur Hofssóknar

Aðalsafnaðarfundur Hofssóknar verður haldin þriðjudaginn 17. apríl, kl. 17:00 í félagsheimilinu Staðarholti. Venjulega aðalfundarstörf og verum öll hjartanalega velkomin.

Mót fyrir 10-12 ára börn

Þann 13.-14. apríl verður mót fyrir börn af öllu Austurlandi sem taka þátt í 10-12 ára starfi kirkjunnar í Kirkjumiðstöðinni Eiðum. Þema mótsins er “Manntréttindi fyrir alla”. Rútan frá Vopnafirði leggur af stað kl. 16:00 á föstudaginn og komið verður til baka upp úr kl. 17:00 á laugardeginum. Með börnunum frá Vopnafirði fara Heiðbjört Marín Tryggvadóttir [...]

Páskadagur

Á Páskadag 8. apríl verða hátíðarmessur í Vopnafjarðarkirkju kl. 8:30 og í Hofskirkju kl. 14:00. Morgunverður og sameiginlegt kirkjukaffi, nýtt lag frumflutt ofl. Vopnafjarðarkirkja - hátíðarmessa kl. 8:30. Morgunverður eftir guðsþjónustuna. Hofskirkja - hátíðarmessa kl. 14:00. Kirkjukórinn frumflytur nýtt lag eftir organista Hofsprestakalls Stephen Yates. Sameiginlegt kirkjukaffi í Staðarholti og við leggjum til kökur og brauð eftir [...]

RSS

17.05.2012 | Enski boltinn

Gerrard: Kenny verður alltaf mitt átrúnaðargoð

Enski
Enski
Steven Gerrard fyrirliði Liverpool þakkar Kenny Dalglish fyrir að hafa hafa mikil áhrif á sinn feril og hann heitir því að gera al...
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón