Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Frjálsar íþróttir.

Næstu helgi verður mikið um að vera hjá frjálsíþróttafólki á Austurlandi en þá fara fram Meistaramót UÍA fyrir 11 ára og eldri og Ávaxtamót UÍA fyrir 10 ára og yngri.Meistaramót UÍA fyrir 11 ára og eldri, verður haldið í Fjarðahöllinni á Reyðarfirði laugardaginn 28. janúar og hefst kl 12 (húsið opnar fyrir keppendur til upphitunar kl 11.30). Keppt verður í flokkum drengja og stúlkna 11 ára, 12-13 ára, 14-15 ára og 16 ára og eldri, í 60 m hlaupi, langstökki, hástökki, kúluvarpi og hringhlaupi. Verðlauna er fyrir þrjú efstu sæti í hverri grein. Þátttöikugjald er 1000 kr á keppenda óháð greinafjölda. Keppendur og áhorfendur er hvattir til að klæða sig vel því eins og flestir vita getur orðið æði kalt í höllinni. Mótið er öllum opið og krakkar sem ekki hafa æft frjálsar íþróttir en langar til að prófa eru hjartanlega velkomnir.Ávaxtamót UÍA fyrir 10 ára og yngri verður á sunnudaginn 29. janúar, í íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði og hefst kl 12. Þar verður keppt í flokkum stráka og stelpna 8 ára og yngri og 9-10 ára í spretthlaupi, langstökki án atrennu, boltakasti og þrautaboðhlaupi. Eins og jafnan á mótum hjá yngstu frjálsíþróttaköppunum ræður leikgleðin ríkjum, glaðbeittir ávextir kíkja í heimsókn og allir þátttakendur fá glaðning í viðurkenningarskyni fyrir þátttökuna. Þátttökugjald er 600 kr á keppenda óháð greinafjölda. Á þetta mót eru allir krakkar 10 ára og yngri hjartanlega velkomnir og skiptir þar engu hvort þeir hafa reynslu af frjálsíþróttaiðkun eða ekki.Skráningar á bæði mótin skulu berast í netfangið uia@uia.is, þátttakendur eru eindregið hvattir til að skrá sig fyrirfram þar sem það einfaldrar undirbúning mótanna verulega, en þó verður tekið við skráningum á staðnum. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Lindu og þar geta Einherja krakkar einnig skráð sig til þátttöku í síma 892-2382.

Æfingar

Æfingar yngri flokka falla niður í dag 27. júní vegna veðurs,fylgist með á síðunni varðandi æfingar á morgun.

Nýjustu fréttir: 2 sigrar og 6 stiga leikur á fimmtudaginn

Það er ekki seinna vænna en að koma með einhver tíðindi af meistarflokki Einherja. Strákarnir hafa spilað 2 útileik síðan þeir sigruðu Hugin hér heima og unnust þeir báðir. --------------------------------------------------------------------------------------------------Hér eru umfjallanir um leikina sem teknar eru af vopnafjardarhreppur.is:Einherji - Draupnir"Þrátt fyrir veður eins og"best gerist erlendis", einstaka veðurblíðu s. s., var leikið á gervigrasinu í Boganum á Akureyri, sem telst heimavöllur Draupnis. Það lið er skipað mörgum frambærilegum leikmönnum sem eiga sína fortíð í stóru liðinum á Akureyri, KA og Þór. Heimamenn byrjuðu betur en vopnfirsku gestirnir voru fyrri til aðskora, vítaspyrna var dæmd á 17du mínútu og úr henni skoraði Gísli Freyr örugglega - átti Gísli stólpaleik og fór fyrir sínum mönnum. Einungis 4 mínútum síðar hafði Draupnir jafnað og stefndi í jafna stöðu í hálfleik en á 38. mín. skoraði Ivo Bencun annað mark Einherja og fyrsta mark sitt fyrir Einherja síðan hann kom til liðsins. Hafði Draupnir misst markvörð sinn útaf með rautt við lok fyrri hálfleiks hvað þýddi að gestirnir höfðu góð tök á leiknum í hinum síðari. Tvö mörk náði Einherji að skora, Ivo Bencun í bæði skiptin og skoraði þar með þrennu fyrir lið sitt og hefur vonandi fundið sig í nýju liði. Ivo er smám saman að falla betur að hinum íslenska knattspyrnuleik og svo sem fyrr greinir er óskandi að héðan af liggi vegur hans einungis uppá við - sem og liðsins alls. Mörk Ivo komu á 50.og 75. mín. og stefndi allt í að slík yrðu úrslitin, 4:1, en rétt undir lok viðbótartíma skoruðu heimamenn og bættu stöðu sína ögn."Myndirúr þessum leik má finna hér: http://vopnafjordur.123.is/album/default.aspx?aid=182184Einherji - Samherji"Umþað mun engu logið að yfirburðir Einherja voru miklir lengstum og með hreinum ólíkindum að liðið skyldi ekki hafa skorað fleiri mörk en þau 3 sem liðið náði þó að skora. Í annað sinn á tímabilinu skoraði liðið mark sem ekki var dæmt sem slíkt, Davíð þrumaði knettinum í slána og augljóslega inn en aðstoðardómari kaus að halda öðru fram. Svo fór að liðið náði forystu með marki Gunnlaugs Bjarnar en áður en hálfleikurinn var úti höfðu heimamenn jafnað 1:1. Mættu gestirnir grimmir til leiks í s. h. og réðu lögum og lofum á vellinum, þrátt fyrir færi gekk þó illa að koma knettinum í netið. Símon braut ísinn þegar liðið var á leikinn áður en Davíð bætti því 3ja við og tryggði öruggan sigur á eyfirðingum - og 3ja sigur Einherja í röð í deildinnni."--------------------------------------------------------------------------------------------------Staðan í riðlinum: Félag L U J T Mörk Net Stig 1 Dalvík/Reynir 6 5 1 0 21 - 3 18 16 2 Einherji 5 3 0 2 11 - 8 3 9 3 Leiknir F. 5 22 1 10 - 7 3 8 4 Magni 5 2 1 2 7 - 11 -4 7 5 Huginn 5 2 0 3 9 - 7 2 6 6 Draupnir 5 1 1 3 7 - 18-11 4 7 Samherjar 5 0 1 4 3 - 14 -11 1Næst á dagskrá er Leiknir kl 20:00 fimmtudaginn 1. júlí, á Vopnafjarðarvelli. Það þarf hvorki mikla stærðfræði- né knattspyrnuþekkingu til að sjá hversu gríðarlega mikilvægur sá leikur er. Sérstaklega þar sem það eru svo fáir leikir í riðlakeppninni - það má lítið út af bregða.Fjölmennum svo á völlinn á fimmtudaginnÁfram Einherji!

Fyrstiæfingaleikur mfl. Einherja

Þá er komið að fyrsta æfingaleik hjá meistaraflokki Einherja á þessu tímabili. Leikið verðu á sunnudaginn 14. mars kl. 13:00 á Fellavelli Fljótsdalshéraði. Mótherjarnir verða Höttur. Erfitt hefur verið að koma hópnum saman þar sem menn eru í skólum víðsvegar á landinu. Fyrsti leikur í keppni (Lengjubikarinn) þetta tímabil verður svo 21.mars í Fjarðabyggðahöllini við Leikni F. sjá leiki Einherja hér

Jólahappdrætti

Jólahappdrætti Einherja 2011 vinningaskrá: 1. vinningur, sjónvarp á miða númer 112 2. vinningur, flugfar á miða númer 240 3. vinningur, gasgrill á miða númer216 4. vinningur, KEA gisting á miða númer 86 5. vinningur, gjafabréf Byko á miða númer 98 6. vinningur,flugeldar á miða númer188 7. vinningur,flugeldar á miða númer 93 8. vinningur,helgardvöl í íbúð Afls á miða númer 292 9. vinningur,gjafabréf í Kauptúni á miða númer 243 10. vinningur,gjafabréf frá Solo á miða númer 102 11. vinningur,snyrtivörur í lyfsölunni á miða númer 144 12. vinningur,snyrtivörur í lyfsölunni á miða númer 146 13. vinningur, tækjakort í íþróttahúsinu á miða númer 21 14. vinningur , tækjakort í íþróttahúsinu á miða númer 94 15. vinningur , tækjakort í íþróttahúsinu á miða númer 76 16. vinningur,gjafabréf frá Hafblik á miða númer 30 17. vinningur,veitingar á Hótel Tanga á miða númer 278 18. vinningur,veitingar á Hótel Tanga á miða númer 298 19. vinningur,gjafabréf frá hársnyrtistofa Þórhildar 294 20. vinningur,gjafabréf frá Greifanum á miða númer 277 21. vinningur,gjafabréf frá Greifanum á miða númer 42 22. vinningur,gjafapoki frá Ljósálf. Egilsst. á miða númer 108 Nánari upplýsingar fást hjá Einari í síma 898-7944 og Lindu í síma 892-2382. Þökkum góðan stuðning á árinu sem er að líða. Einherji

Æfingtafla Einherja

Æfingatafla Einherja 5. jan. - 18. maí 2012 Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur 1. - 3. b. stelpur 13:20-14:20 1. - 3. b. stelpur 13:20-14:20 1.- 3. b. stelpur 13:20-14:10 2. - 4. b. strákar 14:20-15:20 2. - 4. b. strákar 14:20-15:20 4. - 7. b. stelpur 14:30-15:30 2. - 4. b. strákar 13:30-14:30 4. - 7. b. stelpur 14:10-15:10 5. - 6. b. strákar 15:20-16:20 4. - 7. b. stelpur 15:20-16:20 5. - 6. b. Strákar 15:30-16:30 5.-6. b. strákar14:30-15:308. - 10. b. stelpur 16:30-17:30 7. - 10. b. strákar 16:30-17:30 7. - 10. b. strákar 16:30-17:30 7. - 10. b. strákar 15:30-16:30 8. - 10. b. stelpur 17:30-18:30 8. - 10. b. stelpur 16:30-17:30 Þjálfari 1.- 7. bekkjarSigurður Donys Sigurðsson s: 858-7372 Þjálfari 8.-10. bekkjar kvk. Einar Björn Kristbergsson s: 898-7944 Þjálfari 7.-10. bekkjar kk. Aðalbjörn Björnsson s: 899-0408 Frí: 1. - 2. mars / 30.mars - 11. apríl.

Uppskeruhátíð yngri flokka

Uppskeruhátíð yngri flokka Einherja verður fimmtudaginn 1. september í félagsheimilinu Miklagarði kl. 18:00, allir krakkar sem voru að æfa í sumar eru velkomnir ásamt foreldrum sínum.

Næstkomandi laugardag 20. ágúst leikur Einherji síðasta leik sinn í 3. deildinni í sumar , leikið verður við Sindra á Vopnafjarðarvelli kl.14:00, frá kl.13:00 verða seldir hamborgarar og gos á vellinum auk þess sem áhorfendum verður gefinn kostur á því að kjósa leikmann ársins.

4. flokkur

Strákarnir okkar í 4. flokki er komnir í úrslit á íslandsmótinu í keppni 7 manna liða, úrslitin fara fram í Borgarnesi helgina 20.-21. ágúst. # Leikdagur kl Leikur Völlur #Ú --> 1 lau. 20.ágú. 11 13:00 Skallagrímur - Einherji Skallagrímsvöllur 2 lau. 20. ágú. 11 13:00 Hrunamenn - Kormákur Skallagrímsvöllur 3 lau. 20. ágú. 11 15:30 Skallagrímur - Hrunamenn Skallagrímsvöllur 4 lau. 20. ágú. 11 15:30 Einherji -Kormákur Skallagrímsvöllur 5 sun. 21. ágú. 11 11:00 Kormákur - Skallagrímur Skallagrímsvöllur 6 sun. 21. ágú. 11 11:00 Hrunamenn - Einherji Skallagrímsvöllur Þá er bara að vona að okkar mönnum gangi vel um næstu helgi.

Ótitlað

Króksmót 2011Dagskrá Föstudagur 5. ágúst Frá 18.00Afhending gagna og mótttaka liða í Árskóla. Liðin gista í Árskóla við Skagfirðingabraut, Árskóla við Freyjugötu, Fjölbrautarskólanum og jafnvel á fleiri stöðum. Kl. 22.00 Þjálfara/fararstjórafundur Laugardagur 6. ágúst Kl. 7:00-8:30Morgunmatur í íþróttahúsi: Súrmjólk, Cherioos, brauð og ávextir. Kl. 8:30 Setningarathöfn hefst. Allir þátttakendur mæti á knattspyrnuvöllinn næst íþróttahúsi, þaðan mun skrúðgangan fara af stað inn á íþróttasvæðið, í framhaldi verður stutt setningarathöfn. Kl. 09:30Fyrstu leikirnir hefjast. Kl. 12:00Grillað í góðum gír á íþróttavellinum. Grillaðar pylsur og svali í boði fyrir alla vallargesti. Kl. 19:00Leikjum laugardags lokið. Kl. 18:00 - 20.00Kvöldverður í íþróttahúsi, í matinn verður Lasagne. Kl. 20:30 - 21.30Kvöldskemmtun fyrir strákana á íþróttavelli. Kl. 22.00Þjálfara- og fararstjórafundur á kennarastofu í Árskóla, kökur og fínerí. Sunnudagur 7. ágúst Kl. 7:00-9:00Morgunmatur í íþróttahúsi. Kl. 8:30Leikir hefjast á ný. Kl. 11:30 - 13:30Hádegisverður í íþróttahúsi, í matinn verður pizza frá Sauðárkróksbakarí og kók í boði Vífilfells. Kl. 15:30Leikjum dagsins lokið.Verðlaunaafhending Kl. 16:00MótsslitNánari upplýsingar inná. http://www.tindastoll.is/index.php?pid=1814
Augnablik... Loading...
Vefumsjón