Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Hjálp óskast

Stundum leiðir ljósmyndunin og þörfin fyrir að skapa, mann út í óvissuna. Maður er alltaf að finna nýjar hugmyndir til að vinna að og eru 2 nokkuð stórar hugmyndir núna á teikniborðinu. Önnur fer fram núna í endaðan júní og heldur áfram í júlí og jafnvel byrjun ágúst. Sú seinni fer af stað í haust, september/október. Þetta verður eflaust skemmtileg vinna og lærdómsrík og langar mig að finna ungt fólk sem væri til í að aðstoða mig og fá reynsluna að launum ásamt aðgangi að græjunum mínum og hvernig er að vinna á setti. Get því miður ekki greitt nein laun í formi peninga en eins og ég sagði áður að þá getur smá reynsla verið dýrmæt :) Þetta er alls ekki erfið vinna, né mikil, heldur fyrst og fremst skemmtileg og fræðandi um hvað þetta snýst allt saman.

Þegar ég var að fikra mig áfram var ég svo heppinn að fá að aðstoða Spessa þegar hann var að gera kvenhetju seríuna sína og fannst mér það rosa fín upplifun og góð reynsla og núna bara fyrir stuttu síðan aðstoðaði ég hann við myndatökur á BÍ/Bolungarvík dagatalinu bara til að ná mér í smá lærdóm og kom sér það vel fyrir mig og safnaði upplýsingum í reynslubankann. Með því að vera að leita að hjálp í þetta er ég þó ekki að setja mig á sama stall og meistari Spessi heldur langar mig að miðla því sem ég kann til yngra fólks og vonandi vekja hjá því áhuga á ljósmyndun hérna fyrir vestan.

Ef að þú ert strákur/stelpa sem hefur áhuga á þessu og býrð á Ísafirði, þá vinsamlegast hafðu samband og ræðum málin, væri gott að fá í pósti svona sirka hvað þið hafið verið að gera áður í ljósmyndun :)

Quake

Mér var oft sagt þegar ég var yngri og var að fikta í Quake leikjunum að ég hefði nú margt betra að gera við tímann minn en að spila tölvuleiki. Ég að sjálfsögðu neitaði að hlusta eins og venjulega og spilaði ekki einungis, heldur fór ég að smíða borð fyrir leikinn sem allir gætu spilað á. Í fyrstu var þetta bara fikt en fullkomnunaráráttan tók fljótlega yfir og fór ég að sniglast í kringum moddarana sem skrifuðu ákveðin mod( CPMA, OSP ) fyrir þá sem voru að keppa í Quake spilun. Var líka í mjög sterku íslensku klani sem hét MurK og hjálpuðu þeir kumpánar mér mikið við að byggja þetta rétt upp og hafa balance á vopnastaðsetningu og þannig stuffi svo borðið spilaðist sem best.

Og nú er smá viðurkenning komin á þessu fikti mínu því id software var að enda við að kaupa af mér eitt borð sem nefndist Suicide eða ospdm6 fyrir leikinn QUAKELIVE sem er nokkurskonar framhald af Quake III. Þykir mér þetta æðisleg viðurkenning á því sem ég var að brölta þarna 2001 því þessir menn sem sköpuðu leiki á borð við QUAKE, DOOM, WOLFENSTEIN og fleiri voru nánast í guðatölu á þessum tíma í leikjaheiminum og því ef John Carmack opnar á sér þverrifuna, er hlustað, en hann er einmitt stofnandi id software.

Set hérna með nokkur skjáskot af borðinu.

Gaman að þessu :)

Hérna er smá frétt um þetta á Bæjarins besta. Og svo kemur stutt útvarpsviðtal við mig í fyrramálið í morgunútvarpi Rásar 2.

Stay tuned!

Update:
Hlusta má á viðtalið hér. 

Ljósmyndasýning á Ísafirði

Um helgina ætlar hann Pjétur félagi minn að halda ljósmyndasýningu hérna fyrir vestan, nánar tiltekið í Hamraborg á Ísafirði. Pjétur bjó hérna fyrir vestan á sínum æskuárum og vissu allir hver hann var á þeim dögum. Lítill pönkari, sírífandi kjaft. Hann hefur þó aðeins breyst í gegnum árin og er í dag stór pönkari sem kann alveg að rífa kjaft :)

Langar til að hvetja ykkur til að kíkja en sýningin stendur í mánuð. Læt fylgja með tilkynninguna frá kappanum:

Þann 1. maí nk mun ljósmyndarinn Pjétur Geir Óskarsson opna sína aðra einkasýningu í Hamraborg við Hafnarstræti á Ísafirði og ber sýningin yfirskriftina Kreppubílar.
Pjétur Geir hefur áður haldið eina einkasýningu (kaffi mokka 2007 á myndum frá Úkraínu) og tekið þátt í samsýningum.
Sýningarstaðurinn hefur talsverða þýðingu fyrir Pjétur Geir en á Ísafirði ólst hann upp og dvaldi oft dægrin löng með félögum sínum í Hamraborg sem þá var aðal sjoppa bæjarins og er sjálfsagt enn.
Efnistök sýningarinnar að þessu sinni eru gamlir rússneskir bílar sem Pjétur hefur myndað á ferðum sínum um Úkraínu, en með sýningunni vill Pjétur vekja á því athygli að bílar þurfi ekki endilega að vera nýjir og dýrir til að vera fallegir og umfram allt brúklegir til að koma okkur á milli staða.

Sýningin inniheldur 20 myndir og stendur út maí.
Sýningin er sölusýning og er verðinu eins í hóf stillt og frekast er unnt en hver mynd kostar fimm þúsund íslenskar krónur.

Fjaran í Bolungarvík er æðis!

Það er endalaust hægt að leika sér með form náttúrunnar.

Minning - Júlíus Kristján Thomassen

Fyrir rúmlega viku, þann 28. september fékk ég þær fréttir að hann Júlli væri dáinn. Júlla hef ég þekkt síðan ég man eftir mér, fyrsta minningin var einhvernvegin þannig að hann og félagar hans, sem ég man ómögulega hverjir voru, bundu mig fastann við hús. En ekki lengi, voru bara svona rétt að stríða litla stráknum. Hann leysti mig fljótt og baðst afsökunar og sagðist svo þekkja hann Óla bróður en Ingi bróðir Júlla og Óli eru vinir. Í gegnum mín djammár hittumst við oft, ég Júlli og Ingi, en við Ingi höfum alltaf verið mestu mátar. Einnig vorum við Bára systir hans góðir vinir og brölluðum ýmislegt saman á tímabili. Júlli var einn aðal karlinn þegar ég var yngri og báru allir mikla virðingu fyrir þessum dreng.

Ég missti svo af Júlla í nokkur ár en undanfarin ár höfum við alltaf rætt málin þegar við höfum hist og er mér sem ferskast í minni hvað hann var alltaf duglegur að hrósa manni og hvetja til að gera betur og meira í ljósmynduninni. Hann var mikill listamaður og ég hef alltaf munað eftir honum að búa einhvað til. Fyrsta sem ég sá var leðurblaka sem var gerð úr vír og leðri og var svona frekar scary. Síðastliðin ár hefur hann svo verið í grjótlistinni og hefur gert fjöldamörg verk úr grjóti, flotta fiska og alls kyns kynjaverur og má segja að þetta sem hann var að gera sé mjög frumlegt. Einu sinni hittum við Saga hann Júlla og hann gaf henni einn nettan fisk sem Saga geymir í herberginu sínu og fannst henni það ansi merkilegt að einhver gæti gert svona úr grjóti. Júlli var duglegur að sýna steinana sína og ef maður gengur um fallegasta hverfi bæjarins má sjá listaverkin hans þar og inn í tjöruhúsi en þar hitti ég Júlla nánast alltaf þegar ég kom við. Hann hjálpaði oft við eldhússtörfin á veitingastað þeirra hjóna Magga og Rönku.

Ég gleymi því ekki þegar við Matt fórum í heimsókn til hennar Ásthildar vegna verkefnis sem við erum að vinna að og tókum við viðtal við hana. Við Matt röltum svo aðeins um heimakynni Ásthildar á eftir til að mynda og þegar við vorum að fara vildi Ásthildur að við settumst aðeins niður, hún ætlaði að segja okkur sögu af honum Júlla, en þegar Júlli var í fangelsinu gerði hann verk úr vírum stáli og nöglum og sagði hún að mikil heift og reiði hefði fylgt þessu verki. Þegar hann kom með það í húsið var auðvelt að skynja þessar tilfinningar. En einn daginn hvarf þetta verk bara og greinilega einhver kaflaskil urðu og Júlli snéri sér að steinlistinni. Hún sagði okkur söguna af innlifun og tók okkur svo inn í hús og sýndi okkur nokkur af listaverkum sonarins, sem greinilegt var að hún var stolt af. Það verk sem stóð upp úr var skúta gerð úr steini með leðursegli, algert meistaraverk. Mig minnir að skútan hafi verið nefnd í höfuðið á þeim hjónum á skemmtilegan hátt.

Ætlunin var að taka Júlla einnig í viðtal fyrir verkefnið og var hann meira en til í að vera með, en því miður hljóp tíminn frá okkur. Síðasta skiptið er ég heyrði í Júlla var svo bara rétt fyrir andlát hans en hann var alltaf svolítið spes og í rauninni datt ég næstum því af hjólinu mínu er hann kom akandi að mér og sagði hátt og snjallt að steinskúlptúrinn sem hann ætlaði að gera fyrir mig færi að verða tilbúinn, en við höfðum mælst um að hann gerði fyrir mig hnefa úr steini sem ég ætlaði svo að kaupa af honum. Hann stoppaði ekkert þarna, heldur ók bara hlægjandi í burtu, sínum prakkarahlátri.

Júlli átti sína djöfla að draga en aldrei týndi hann sjálfum sér sem stórhjarta strákur sem vildi allt fyrir alla gera.

Minning hans mun ávallt lifa í hjörtum okkar.

Elsku Ásthildur og Elli, Úlfur og Sigurjón Dagur, Ingi, Bára og Skafti og aðrir aðstandendur og vinir, innilegar samúðarkveðjur.

Endilega rúllið í gegnum myndirnar að ofan en þar má sjá nokkur verk Júlla.

The show must go on!

NV Vestfirðir heldur áfram för sinni um Vestfirði, en næsta stopp mun vera á Tálknafirði á nýopnuðu kaffihúsi Ársæls Níelssonar og Auðar Birnu Guðnadóttur, Kaffi Sæla. Sýndar verða 7 ljósmyndir prentaðar á striga eftir áhugaljósmyndarann mig.

Er þessi sýning liður í verkefni sem sótti um styrk til Menningarráðs Vestfjarða og fékk styrk til þessa ferðalags um Vestfirði. Mun verða nýbreytni í opnun á þessum stað, en hljómsveitin Megakukl mun spila við opnun sýningarinnar en það er liður í samstarfi Guðmundar Hjaltasonar og mín, en Guðmundur hlaut einnig styrk frá Menningarráði til að flytja tónlist um alla Vestfirði. Hugur er á áframhaldandi samstarfi beggja aðila til að gera sem mest úr tónleikum/opnun á hverjum stað sem hægt er að nota þetta fyrirkomulag.

Eru allir hvattir til að mæta á Kaffi Sæla á föstudagskvöldið kemur!

NV Vestfirðir á vegum Vestfjarða

Ljósmyndasýningin NV Vestfirðir er farin af stað um vegi Vestfjarða og hefur fyrsti bærinn verið heimsóttur, en valinn var sá staður sem er fámennastur og trúlega erfiðast að komast á, en 10 myndir voru settar upp á Kaffi Norðurfirði, í Norðurfirði í Árneshreppi. Kaffi Norðurfjörður opnar einmitt í dag, 12. júní og verður ýmislegt gert til þess að gera opnunina sem skemmtilegasta og þótti tilvalið að opna sýninguna sama dag. Nýr rekstraraðili sér um Kaffi Norðurfjörð næstu 3 árin, en ungur maður að nafni Einar tók við staðnum. Best að geta þess að Norðufjarðarborgarinn þeirra er með þeim bestu sem ég hef smakkað, en Bernaise sósa kemur þar sterklega við sögu og leikur eitt aðalhlutverkið í gæðum þessa borgara(A.T.H er mjög mikill áhugamaður um hamborgara).

Sýning þessi hlaut styrk frá Menningarráði Vestfjarða og gerði mér því  kleyft að heimsækja fleirri staði en stóð til. Skiptir því svona styrkur öllu máli fyrir sýninguna! Takk Menningarráð!

Sýndar eru myndir frá Árneshreppi sem teknar voru síðasta sumar og eru þær prentaðar á venjulegan ljósmyndapappír og límt á foam í stærðinni A3

Takk fyrir komuna!

Mig langar að þakka öllum þeim sem komu á Kaffi Edinborg og skoðuðu ljósmyndasýninguna mína um páskana og síðastliðnar vikur. Mjög margir létu sjá sig á opnuninni og tel ég að um 100 manns hafi komið og rúllað í gegn á þeim 2 tímum sem opnunin stóð yfir. Tekið var upp á þeirri nýbreytni að varpa um 1000 myndum af Vestfjörðum á skjávarpa og sátu sumir gestir í allt að klukkustund að skoða.
Selst hafa 5 myndir og tel ég það nokkuð gott bara og vil ég þakka þeim sérstaklega sem keyptu og í leiðinni styrkja mig til áframhaldandi ljósmyndunnar. Allt að 5 eintök eru seld af hverri mynd. Við Erik, eigandi Kaffi Edinborg höfum fallist á það að leyfa myndunum að hanga einhvað lengur fyrir utan þær sem selst hafa þannig að það verður enn tækifæri um sinn að fara og skoða.

Þeir sem hafa áhuga á að kaupa myndir, vinsamlegast hafið samband.

NV Vestfirðir II

Páskar.....ahhhhhh.....segjum þetta aftur...Páskar.....ahhhhhh!! Gæti sagt þetta í allan dag, eða allavega einhvað af honum. Nú er að renna í hlað einn minn uppáhaldsárstími. Ísafjörður lifnar allur við og er margt um manninn hérna á þessum tíma. Gamlir brottfluttnir ísfirðingar heimsækja æskuslóðirnar og er frábært að hitta allt fólkið aftur, Páskar.....ahhhhhh.....

Ég ætla svo að opna mína fjórðu einkasýningu á ljósmyndum, en þess ber að geta að þetta er mín fjórða sýning á aðeins einu ári! Ég er mjög stoltur af því:)
Sýningin mun verða haldin á Kaffi Edinborg, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Sýndar verða 12 kryddaðar landslagsmyndir prentaðar á striga í stóru prenti, allt frá 50cm upp í 130cm á breiddina. Er það Pixel ehf sem prentar myndirnar og rammar þær líka á blindramma. Pixel er aðal stryktaraðili sýningarinnar og hefur vinnan með þeim verið einkar liðleg og þjónustan góð. Vil ég nota tækifærið og þakka þeim sérstaklega fyrir hjálpina, Bjarni, þú rokkar!

Einnig hafa hinir ýmsu aðilar lagt mér lið og vil ég þakka eftirfarandi:
Vona að þú komist, því þér er boðið :)

Gleðilega Páska!

Auðun&ísbjörninn

Eitt af því sem ég hef mjög gaman að gera í sambandi við ljósmyndun, er leikhúsljósmyndun. Þar nær maður lífi og list saman og vonandi einhverri tilfinningu með. Gefandi starf og höfum við Elfar Logi svolítið verið að leika okkur að þessu, en hann er einmitt aðalleikari Vestfjarða. Með orðinu aðalleikari meina ég það að hann er AÐAL leikarinn okkar! Hann er alltaf að, og gerir ýmislegt sem manni dytti ekki í hug að einn maður raunverulega gæti. Á hann að vísu góðann stuðning konu sinnar. Alltaf þegar hann lætur heyra í sér með nýtt verk, verður maður spenntur og setur í gírinn. Auðunn&ísbjörninn er næstur á dagskrá!

Allt um sýninguna og miðakaup hér!
Augnablik... Loading...
Vefumsjón